Blanda - 01.01.1940, Page 78
76
armestu embættum, ýmist í umbo'Öi landsmanna eÖai
konungs eÖa hvorratveggja. Hann virðist standa.
nærri þeim atburÖum, er útlendur hirðstjóri (Smið-
ur Andrésson) var veginn og sjálfur lögmaðurinn.
syðra (Jón Guttormsson skráveifa) og síðar íslenzk-
ur hirðstjóri (Eiríkur Guðmundsson), sem raunar
voru allir mestu glæfraseggir. En ekki minnkuðui
völd og álit Þorsteins við slíkt, jafnvel hjá kon-
ungsvaldinu sjálfu, sem þó hafði stutt menn þessa;
til valda.
Sumir fræðimenn1) hafa gizkað á, að Þorsteinn
hafi verið sonur Eyjólfs riddara Ásgrimssonar, semi
lézt 1302. Aðrir gizka á, að Þorsteinn hafi verið
sonur Eyjólfs Helgasonar, er búið hafi á Grýtu-
bakka2). En hvorttveggja er skakkt. Þorsteinn er'
ekki fæddur fyrr en um 1315—20, eða svo sem 1317»-
að ætla má af aldri barna hans og næstu niðja. Hann
er þvi of ungur til þess að geta verið sonur Eyj-
ólfs Ásgrímssonar. En af Þönglabakkamáldaga Auð-
unar rauða3), sem getur Eyjólfs Helgasonar, má.
ráða, að sá Eyjólfur hafi búið á Þönglabakka, en
ekki á Grýtubakka. Hann er alls ekki faðir Þor-
steins lögmanns.
Eyjólfur nokkur nefnist í auka við Urðamáldaga
Auðunar biskups rauða4), og hafSi Urðakirkju gef-
1) Bogi Benediktsson: Sýslum.ævir I, bls. 16.
2) Jón háyfirdómari Pétursson: Sýslum.ævir I, bls. 16,.
neSánmáis.
3) ICaflinn um Eyjólf Helgason (D.f. II, 444) er þó-
liklega auki frá dögum Orms biskups, ef Eyjólfur sá er
sonur Helga (Þorsteinssonar, Geirssonar) úr AuÖbrekku..
En heldur mun hann bróðir Hjalta og Ketils Helgasona,.
af Leirhafnarætt.
4) D.í. II, bls. 457-