Blanda - 01.01.1940, Síða 117
115
og Þórðar Skúlasonar (sbr. bls. 47, 48, 120).
I skránni eru þó nefndir stórættaðir prestar
og höfðingjar eins og Oddr Gizurarson eystra,
Loftr og Eyjólfr, synir Sæmundar fróða, Skafti
Þórarinsson á Mosfelli syðra, Einarr Skúlason
skáld, Þorgils Arason, Oddi Þorgilsson, Ingi-
mundr Einarsson á Reykhólum vestra, Brandr
tílfhéðinsson og Klængr Þorsteinsson, síðar
biskup, nyrðra. Ættir mestu höfðingja landsins,
sem taldir eru í Kristnisögu um 1120 (Bisk. I.
30—31), eru ekki raktar í Frum-Landnámu
nema sumra. Gizurr Einarsson og Sigmundr
Þorgilsson eystra eru ekki nefndir á nafn. Ætt
Ásbirninga í Skagafirði er alls ekki rakin, og
Halldórr Egilsson og Þórðr Egilsson eru ekki
heldur nefndir. Annars er sjálfsagt stundum
orfitt að skera úr því, hvaða ættrakningar um
menn, er uppi hafa verið á öndverðri 12. öld,
hafa staðið í Frum-Landnámu, og hverjum við
hefir verið bætt af Melamönnum, Styrmi, Sturlu
°& Hauki lögmanni. En þar sem ættrakning
nemur alveg staðar við menn, sem uppi voru á
fyrra hluta 12. aldar, þá virðist mega gera ráð
fyrir þvi, að sú ættfærsla hafi verið í Frum-
Landnámu. Annars er þetta sérstakt rannsókn-
arefni, enda er ekki tilætlunin, að rekja það
tæmandi hér, hverir nafnkunnir menn á tíma
Frum-Landnámu hafi verið ættfærðir í henni,
en miklu mun þó ekki skakka frá því, sem talið
hefir verið hér að framan.
Láta mun nærri, að ættir séu raktar frá
nokkrum landnámsmönnum til 30—40 nafn-
kunnra karla og kvenna, sem uppi hafa verið
e5a nýlega látnir, þegar frá Frum-Landnámu
hefir verið gengið. Þessir menn og þessar kon-