Blanda - 01.01.1940, Page 118
116
ur hafa þá verið nafnkunnar og ættstórar. Oft
er aðeins ein lína rakin, og einatt eru ættir
manna þessara mjög saman tengdar. Þeir eiga
margir ætt að rekja frá sama landnámsmanni
eða sama höfðingja á 10. eða 11. öld, t. d. frá
Ketilbirni gamla, Halli af Síðu o. s. frv. Ætt
Halls í Haukadal og Þorláks biskups Runólfs-
sonar er t. d. hin sama frá Bröndólfi Mássyni,
og ættir Ara fróða, Sæmundar fróða, Jóns bisk-
ups helga, Magnúsar biskups Einarssonar, Halls
Teitssonar í Haukadal og Járngerðar, konu
Markúsar Skeggjasonar og ömmu Böðvars Þórð-
arsonar í Görðum, föður Guðnýjar í Hvammi,
koma t. d. allar saman í Síðu-Halli (sbr. Landn.
bls. 141—142).
Þeir, sem um Landnámu hafa síðar fjallað,
liafa rakið ættir til nokkurra manna, er uppi
voru síðara hlut 12. aldar eða á 13. eða önd-
verðri 14. öld, svo sem Brands biskups Sæmund-
arsonar, Þorláks biskups helga Þórhallssonar,
Guðmundar biskups Arasonar, Guðmundar gríss
Ámundasonar á Þingvelli og frá honum til Giz-
urar Þorvaldssonar og Árna biskups Þorláks-
sonar (Staða-Árna). Frá Sæmundi fróða er og
rakið á fleiri vegu, frá Lofti presti, syni hans,
um Jón Loftsson til Páls biskups, Sæmundar í
Odda og Sigurðar í Ási Jónssona og frá Sigurði
til Steinunnar, konu Hauks lögmanns. Svo rekja
þeir til Magnúsar biskups Gizurarsonar og Hall-
dóru konu hans Hjaltadóttur, Þorfinns ábóta
Þorgeirssonar á Helgafelli, Arníss ábóta Bjarn-
arsonar, sem ekki er annað kunnugt um, en að
hann var að þriðja og fjórða (ekki fjórmenn-
ingur, eins og Jón Sigurðsson segir, Isl. fbrs. I.
485) við Guðmund grís, einum ættlið nær nú-