Blanda - 01.01.1940, Page 121
119
Sturlu, Ásbirni Arnórssyni, Sigmundi Þorgils-
syni, Bárði svarta, Þorvaldi i Vatnsfirði Kjart-
anssyni og Þorsteini ranglát. Þá er og rakin
ætt frá Teiti ísleifssyni í Sturl. II. 21—23. Eldri
ættir og yngri eru og saman tengdar í áður-
nefndum ættarskrám Melabókar, enda er þar
ýmiss fróðleikur, sem ekki finnst annarstaðar.
Flestar ættir hafa að einhverju leyti gleymzt
þegar á 11. öld og mjög margar hafa alveg verið
gleymdar á fyrra hluta 12. aldar. Þær ættlínur,
sem höfðu kunna menn, marga eða fáa, hafa
geymzt, en hinar týnzt, alveg eins og á síðari
öldum. Miðað við landsfólkið í heild hafa ekki
margar ættlínur geymzt fram á 12. öld. Ættar-
minningin getur ekki haldizt, nema völd og auð-
ur eða einhverir sérhæfileikar, t. d. fræði-
mennska, heldist með niðjum ættfeðra þeirra,
sem numið er staðar við. Þessum skilyrðum,
einhverjum eða öllum, fullnægja þær ættir, sem
tengdar verða á 13. (og 14.) öld við fornætt-
irnar. Ef ættin missir þessi skilyrði, ef atkvæða-
menn eru engir lengur í henni, þá gleymist hún.
Karlleggur ættar Ingólfs landnámsmanns Arn-
arsonar, sem göfgastur þótti allra landnáms-
manna að tali Ara fróða, gleymist með Þor-
ttióði nokkrum Skeiðagoða, sem ætti að hafa
verið uppi á síðari hluta 12. aldar (sbr. Landn.
bls. 28). Það er og einkennilegt, að Ámundi
faðir Guðmundar gríss skuli ekki vera feðrað-
ui*» en móðurætt Ámunda þessa frá Síðu-Halli
er nógu göfug til þess, að hún yrði munuð, og
ætt konu hans, en móður Guðmundar, hefir
geymzt í einni ættlínu. Guðmundr gríss bjó á
Þingvelli. Hann var tengdasonur Jóns Lofts-
sonar og afi Gizurar Þorvaldssonar og Staða-