Blanda - 01.01.1940, Page 136
134
skammt), og, að því er virðist, meir en missiri
(qua ultra semestre bene gesta). A fer þó skakkt
með þetta, veit það sýnilega ekki, að Björn varð
að hafast tvo vetur við í Grænlandi, eins og ann-
áll Flateyjarbókar, samtímaheimildin, segir. A
bætir hér við hinar heimildirnar, að Björn hafi
kynnt sér allt það rækilega, sem unnt hafi verið
um hagi Grænlands (de rebus Grönlandicis), að
hann hafi dyggilega (fideliter) skráð það í
ferðabók sína og sett það eftir heimkomu sína
í annála vora. Hér segir Arngrímur víst drjúg-
um meira en hann veit. Sjálfur hefir hann ekki
notað beztu heimildina, annál Flateyjarbókar,
því að þá hefði hann að minnsta kosti getað
sagt dvalarlengd Bjarnar í Grænlandi jafna og
annállinn.
c. Allar segja heimildirnar, nema A2, að
Björn hafi haft Eiríksfjarðarsýslu, meðan hann
var í Grænlandi. J og B segja hann hafa fengið
sauðarbóga eða framparta af sauðaslátrum í
„gjaftolla" um haustið. J segist ekki muna töl-
una, en B greinir hana. A2 segir Björn hafa
fengið 150 „Par Faareskanker i Tiend“ hjá
Grænlendingum, þótt ekki sé getið um sýsluveit-
ingar þeirra til handa honum. Grænlendingar
taka við Birni úr hafvolki. Eftir dómnum í
Björgvin 20. maí 1389 höfðu Grænlendingar
samtök um, „að engir Austmenn, sem þar voru
komnir, skyldi fá kost at kaupa, utan þeir keyptu
annan grænlenzkan varning meður“. Og enn
segir í dóminum, „at Austmenn buðu skip til at
færa krónunnar góz. Vildi konungs umboðs-
mann þat eigi út fá, sakir þess at þeir höfðu
þar engin bréf til“. Þetta sóru tveir skilríkir
menn, er á Grænlandi voru „fyrir þeim“. „Aust-