Blanda - 01.01.1940, Side 183
Skáldacongressinn á Parnassi.
Drama í 2 þáttum eftir Einar Benediktsson.
Skáldacongressinn á Parnassi ev að finna í eiginhand-
arriti höfundarins í Lbs. 1316, 4to, en þangað lcominn
frá Benedikt Gröndal, sem hefir skrifað framan við:
»Eiginhandrit og unicum“. Þessi ófullgerði Ijóðaleikur
01' hið fyrsta í bundnu máli frá hendi Einars Benedikts-
sonar, sem kunnugt er um, ortur á Garði 1885, eins og
segir á titilblaði leiksins. Því miður lýkur leiknum þá
hæst hann fer, einmitt þegar skáldin eru að koma sér
saman um það, hvert þeirra sé mest. Tilefni leiksins er
annars þjóðskáldadeilan frá næstsíðasta tug aldarinn-
ar, sem leið, og er leikurinn skemmtileg viðbót við upp-
lýsingar, sem fást við lestur bréfa og ævisagna hinna
merku skálda. (Sjá einkum: Benedikt Gröndal: Dægra-
dvöl og Sendibréf frá B. G., enn fremur Bréf Matthías-
ar Jochumssonar, t. d. bls. 331 o. fl.) Yngri skáldin,
sem koma fram á skáldaþinginu, ei-u þeir félagar:
Hannes Hafstein, Einar Hjörleifsson (Kvaran) og
Bertel E. Ó. Þorleifsson, eða útgefendur Verðanda að
Gesti Pálssyni undanteknum. Eldri skáldin eru: Matthí-
as Jochumsson, Steingrímur Thorsteinsson, Benedikt
Gröndal og Grímur Thomsen. Getið er um Valtý Guð-
mundsson, en hann var eins og Verðandi-skáldin sam-
tímis E. B. við nám í Höfn veturinn 1884—85. Sjón-
jeikur með ljóðum eftir Valtý Guðmundsson og Stefán
Btefánsson var sýndur af skólapiltum i Reykjavík vet-
urinn 1882—83 og í íslendingafélagi í Höfn veturinn
eHjr, svo að Valtýr hefir eitthvað verið kenndur við
sháldskap i hópi skólabræðra sinna. Nýja blaðið, sem
Um getur, er sennilega Fróði, sem Björn Jónsson prent-
am gaf út ásamt Einari Ásmundssyni, en Björn afsal-
aði sér blaðinu nokkru eftir þetta. — Ef til vill er fyrir-
myndina að svamli Einars á hinum lítt þekka farkosti
að finna í Pétri Gaut, 5. þætti, 2. atriði, er Pétur ryður