Blanda - 01.01.1940, Síða 196
194
biskup hafði og hirðstjórn 1533—1536 eða 37
í biskupsdæmi sínu. Hann andaðist í hafi á
leið til Danmerkur 13. júlí 1541, samkvæmt
sjálfri bréfabók Gizurar biskups samtíða (Dipl.
Isl. X. nr. 412, bls. 693). — í skrá Jóns Sigurðs-
sonar yfir Skálholtsbiskupa1 2) er talið, að Ög-
mundur biskup yrði 80 ára og dæi 1542, en þar
sem það er nú vitað, að hann dó 13. júlí 1541,
mega aldursárin eftir því fækka að minnsta
kosti niður í 79 og yrði hann þó eptir því fædd-
ur um 1462. Dr. P. E. Ó. bendir á, að Ögmund-
ur muni raunar ekki fæddur fyrr en nálægt
1475“), og ef Ögmundur hefir verið vígður
1499, — það ár er hann kemur fyrst við sam-
tíða skjöl, þá talinn prestur3), — svo sem 24
ára gamall, sem kirkjulög ákváðu, þó að stund-
um væri menn prestvígðir miklu yngri, jafnvel
18 ára), — þá ætti hann helzt að vera fæddur
á árunum 1474—75. En Ögmundur mun hafa
verið bráðþroska, slíkur afburðamaður sem
hann var, og því ekki líklegt, að prestvígslu
hans hafi verið frestað lengur en þurfti lag-
anna vegna. Ýmislegt bendir og til þess, að
Ásdís, sem talin er skilgetin systir hans, hafi
verið fædd heldur eptir en fyrir 1475. Og sé sú
ætlun P. E. Ó. rétt, að Margrét Ögmundardótt-
ir, móðir ögmundar biskups og Ásdísar á Hjalla,
hafi verið sonardóttir Eyjólfs mókolls (II.)
Magnússonar, er kvænzt hefir um 14344), þá
1) Safn til Sögu íslands I, bls. 3.
2) Menn og menntir II, bls. 118.
3) Bréf það er gert 1 Skálholti 10. apríl 1499 (D. í-
VII, nr. 437, bls. 417—418.
4) Dipl. fsl. IV, nr. 574, bls. 539; sbr. P. E. Ó. Menn
og menntir II, bls. 118—119.