Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 199
197
Eyjólfs mókolls (I.) í Haukadal í DýrafirSi,
Halldórssonar, Pálssonar (d. 1371), Þorleifs-
sonar hins auðga á Reykhólum (d. 1379), Svarts-
sonar, Þorleifssonar1).
Samkvæmt framanrituðum athugunum verð
ég að fallast á þá ætlun dr. P. E. Ó., að Ög-
viundur Eyjólfsson, sá sem er gerningsvottur í
Otrardal í Arnarfirði 24. ágúst, og í Haga á
Barðaströnd 31. ágúst 14612), sé enginn annar
en Ögmundur, móðurfaðir ögmundar biskups,
og að Ögmundur Eyjólfsson þessi hafi einmitt
verið sonur Eyjólfs mókolls (II.) Magnússonar
og samfeðri (eldri) hálfbróðir þeirra Magnúsar
Skálholts biskups, ívars, Dýrfinnu, Ingibjargar
móður Eyjólfs mókolls (III.) Gíslasonar, og
Margrétar, konu Páls Jónssonar á Reykhólum,
1) Þessi ætt verður aðeins fundin með nákvæmri
i'annsókn Laugardals-erfða. Svartur faðir Þorleifs
auðfj-a hefir verið son Þorleifs Fagurdæls (líkl. bróður
Þorsteins genju), Guðmundarsonar skálds, Svertings-
sonar skálds í Fagradal og í Hvammi í Dölum, Þor-
leifssonar skeifu, Þormóðarsonar Skeiðagoða, beint af
karlkvísl Ingólfs Arnarsonar.
Víst er, þegar gætt er að því, að Þorleifur Svartsson
hefir (1330) kvænzt Katrínu úr Haga, dóttur Filippus-
ai' (d. 1326), Loftssonar, Gíslasonar, — að Svartur Þor-
leifsson eldri á Reykhólum, faðir Þorleifs hins auðga,
var ekki sonur Þorleifs haga Eyvindarsonar, sem menn
hafa áður ætlað. En Þorleifur Fagurdæll hefir átt
systur Vigfúsar Gunnsteinssonar og systurdóttur
Skarðs-Snorra og komizt þannig að Reykhólum, er
Skarðs-Snorri áður átti. Sæunn, kona Skarðs-Snorra,
hefir verið dóttir Jóns Brandssonar á Reykhólum með
íyrri konu Jóns, Tófu Snorrad., Bárðarsonar hins
svarta.
2) Dipl. Isl. V, bls. 239. Gerningurinn snertir Filippus
Sigurðarson, föður Gisla, föður Eyjólfs mókolls (III.)
1 Haga.