Blanda - 01.01.1940, Page 208
206
arssonar frá Bæ (d. 1264), er átti Herdísi Arn-
órsdóttur, systur Kolbeins unga. En af því að
Eyjólfur Magnússon mókollur átti Bíldudal og
Bíldudalseyri, sem sjá má af vottorði nokkru
frá 15. sept. 1387, að áður hefir átt Skallcb-
Grímur Auðunarson í Selárdal1) (f. um 1280,
d. 1353), má ætla, að faðir Eyjólfs mókolls (II.)
hafi verið:
Magnús Grímsson (f. um 1375, dáinn fyrir
21. okt. 1422 (dó líklega um 1417)), er kann að
hafa búið á Auðunarstöðum í Víðidal2) og hef-
ir verið fyrri maður Ingibjargar Klemenzdótt-
ur, er Pétur Finnsson á Auðunarstöðum (og í
Ljárskógum) átti síðar. En áður mun Magnús
hafa átt systur Eyjólfs mókolls (I.) Halldórs-
sonar í Haukadal í Dýrafirði, og hefir Eyjólf-
ur mókollur (II.) Magnússon3) verið sonur
þeirra.
Faðir Magnúsar Grímssonar hefir verið:
Stakka-GHmur Ketilsson, líklega búandi á
Stökkum á Rauðasandi, fæddur um 1350, var
liðveizlumaður Þórðar Sigmundarsonar íGnúps-
bardaga í Dýrafirði 16. nóv. 1393, en var dæmd-
ur útlægur 1394 fyrir víg Odds Jónssonar úr
liði Bjarnar Jórsalafara (Flateyjarannáll)4).
1) D. í. IX, nr. 12, bls. 20—21.
2) D. í. IV, bls. 302.
3) Bróðir Eyjólfs mókolls (II.) mun hafa verið:
Auðunn Magnússon, sem er einn af 9 brullaupsvottum
þeirra Þórðar Sigurðarsonar frá Haga og Ingibjargar
Halldórsdóttur, Jónssonar, að Saurbæ á Rauðasandi 27.
nóv. 1439 (D. í. IV, bls. 603).
4) Annar sonur Stakka-Gríms hefir verið Auðunn
Grímsson (bréf vestra 1426—1436), er átti og bjó i
Tungu í Skutilsfirði (D. í. IV, bls. 335, 546, 557; VIII,
bls. 199),átti Valgerði Sigmundardóttur; þ. b. Þor-
lákur í Tungu og fleiri.