Blanda - 01.01.1940, Síða 220
218
En Guðni kvæntist um 1456 Þóru laundóttur
Bjarnar ríka. Hvernig Skúli eignaðist hálfan
Ásgarð er ekki sagt. En líklega hefir hann keypt
helming sinn af Ólafi presti Tumasyni, því að
svo segir í vitnisburðinum frá 2. júní 1470, er
Jóreiður Ólafsdóttir (máske prests, Tumason-
ar) handfesti Margrétu Þorsteinsdóttur, norð-
ur í Húsavík í Steingrímsfirði, að þeir bræður,
Ólafur prestur og Guðmundur, Tumasynir,
fengu sinn helming hvor í Ásgarðsjörðu. En
Egill, bróðir þeirra, fekk sum húsin (D. í. V,
nr. 508, bls. 567—8). En fyrrgreind Margrét
Þorsteinsdóttir hefir því tekið vitnisburðinn,
að hún hefir þá verið ekkja eftir Guðmund
Tumason í Ásgarði. En Margrét þessi hlýtur
að hafa verið systir Páls (bréf 1461), föður
Þórðar, föður þeirra: a) Páls í Hróarsholti,
föður séra Þórðar í Hraungerði, föður þeirra:
aa) Páls í Kalmanstungu, föður séra Thómasar
í Ögri og á Stað í Grunnavík (d. c. 1629), og
bb) Þorleifs í Hróarsholti, sem fjölmenn ætt
er frá komin. — Bróðir Páls í Hróarsholti hefir
verið: b) Önundur Þórðarson (bréf vestra 1514
—1517: D. í. VIII, 240, 526—8, 603), faðir
þeirra Andrésar og Þórðar Önundarsona, sem
koma við bréf vestra eftir 1520.
Vegna þess, að þeir Guðni Jónsson og Björn,
sonur hans, áttu jafnan annan helming Ásgarðs
á árunum 1456—1518, sést, að Þórólfur Ög-
mundsson (móðurbróðir Ögmundar biskups)
hefir eignazt þann helming Ásgarðs, er Guð-
mundur Tumason, Bergþórssonar hafði áttan,
fyrir eða um 1498. Mér sýnist líklegast, að
Þórólfur hafi fengið hálfan Ásgarð hjá
Margrétu Ögmundardóttur, systur sinni, er þá