Blanda - 01.01.1940, Síða 222
220
ar, en fyrst nokkurra móðurfrænda Páls, föður
Ögmundar biskups.
í bréfi nokkru, rituðu í Skálholti 28. ágúst
1539, kallar Ögmundur biskup Daða í Snóks-
dal „vorn kæra frænda“ (þ. e. Ögmundar bisk-
ups). Bréf þetta er prentað í Dipl. fsl. X, nr.
195, bls. 469—470, eftir frumriti. Frændsemi
þeirra Daða og Ögmundar biskups mætti vera
svo, að Þorsteinn, faðir Margrétar, móður Páls,
föður Ögmundar biskups, hafi verið sonur Guð-
mundar sýslumanns (d. 1388), Ormssonar lög-
manns, að Skarði á Skarðsströnd (d. 1403),
Snorrasonar. Væri þá Þorsteinn þessi bróðir
Þorbjargar, konu Guðna Oddssonar lepps;
þeirra dóttir var Sæunn, móðir Þorbjargar
(Bersadóttur), móður Þórunnar (Daðadóttur),
móður Daða í Snóksdal. Eftir þessu yrði þeir
Daði í Snóksdal og Ögmundur aðeins á 4. og 5.
frá Guðmundi Ormssyni, þannig talið:
Guðmundur í Þorsteinn. — Margrét. - Páll. — Ögmundur biskup.
Ormsson \ Þorbjörg. — Sæunn. — Þorbjörg. — Þórunn. — Daði.
Frændsemi þessi er helzti fyrnd til þess að Ög-
mundur væri líklegur til að virða hana mikils
við Daða. Og þó getur þetta rétt verið. Enda
gæti enn nánari frændsemi til verið milli Daða
og Ögmundar, þótt þessi væri til; — sú, að Guð-
mundur Finnsson, faðir Daða, hafi verið syst-
urson Guðmundar Tumasonar í Ásgarði, föður
Páls, föður Ögmundar, og þeir Daði og Ög-
mundur þannig þrímenningar, eða að dóttir
Guðmundar Tumasonar, þá með fyrri konu
hans, en ekki dóttir Margrétar Þorsteinsdótt-
ur, hefði verið móðir Guðmundar Finnssonar,
föður Daða. Yrði þeir Daði og Ögmundur þá