Blanda - 01.01.1940, Page 323
321
uðu riæturgreiða, en ekki var greiði seldur. Það
þekktist ekki.
Hjá Brattastíg sveigist vegurinn aftur að
læknum, og taka aftur við vöð og eyrar. Fyrst
er Mógilsvað, þá Svartabakkavað, Steinagils-
vað, Ásendavað, Engjavað, Klaufarvað, Þvotta-
pyttsvað og Kirkjuvað. Er þá komíð upp fyrir
bæinn Syðra-Rauðalæk, og eru vöð þau, er síð-
ast voru talin, öll, að undanskildu Mógilsvaði, í
landi Syðra-Rauðalækjar. Enn heldur vegur-
inn áfram um Breiðavik og Brekkuþýfi, og er
þá komið í Efra-Rauðalækjar land. Þá snar-
beygir vegurinn til suðausturs um mýrarsund,
sem ,,brúað“ hefir verið endur fyrir löngu, um
Miðmundaholt (miðmundi frá Efra-Rauðalæk),
þá um lága lyngheiði, yfir Ægisíðusund og
Ægissíðugil, að Ytri-Rangá hjá Ægisíðu, og er
þá lokið ferðinni yfir Holtin. Hún mun hafa
tekið 4—5 tíma lestagang með áningu á sumar-
daginn, en að hausti og vetri gat þessi vega-
lengd tekið lengri tíma eða meiri hluta dags,
því að þá varð oft að fara miklu krókóttara, ef
lækjarvöðin voru ófær.
Þessi leið, sem nú hefir verið lýst í fám drátt-
um, mun hafa legið þarna um margar aldir
með litlum breytingum og verið alfaravegur
yfir Holtin, að minnsta kosti er farið var til
Eyrarbakka, í Þorlákshöfn, Selvog, Herdísar-
vík og Grindavík úr áðurnefndum sýslum. Hins
vegar voru aðrar leiðir farnar af þessum slóð-
um til alþingis á Þingvöll eða suður um Hellis-
heiði. Yar þá fárið yfir Þjórsá hjá Egilsstöð-
um, Króki eða enn ofar.
Áningarstaður hefir efalaust frá elztu tíð
verið nálægt Ægisíðu, hvort sem komið var
Blanda VII
21