Blanda - 01.01.1940, Page 359
357
fara leiðina á milli Kambfells og Ábæjar. Var
það haustið 1901 eftir veturnætur, einsamall,
í miklum snjó, en austur yfir fór hann þá sum-
arleiðina við annan mann í dimmviðris hríð.
Sigtryggur er enn á lífi.
Nýjabæjarfjall var því enn farið fram um
aldamót og nokkru lengur.
Haustið 1878 var farið með fé yfir fjallið,
og var sú ferð lengi i minnum höfð. Hefir heim-
ildarmaður minn það eftir gömlu fólki, að það
muni hafa verið einhver fyrsti fjárreksturinn,
sem Eyfirðingar fóru með þar yfir, enda hafi
það þótt nokkrum tíðindum sæta, er þrír menn
úr Eyjafirði lögðu upp í ferð yfir Nýjabæjar-
fjall til Skagafjarðar að sækja þangað fé rétt
við veturnætur. Verður nú nokkuð sagt frá
þessari ferð.
Þessir þrír menn voru: Jónatan Jósefsson,
síðar múrari á Akureyri, þá til heimilis að
Torfufelli, 24 ára að aldri, Ólafur Sigurðsson,
síðar bóndi í Leyningi, nálægt tvítugu, og Jón
Sigurðsson frá Jórunnarstöðum, bróðir Magn-
úsar á Grund, og mun hann hafa verið innan
við tvítugt.
Búningi þeirra er svo lýst, að þeir hafi ver-
ið mjög létt klæddir til að mæta harðviðri.
Jónatan var alveg verjulaus, aðeins í venju-
legum vaðmálsfötum, en hinir tveir höfðu með
sér einhverjar skjóllitlar yfirhafnir. Þeir höfðu
með sér áttavita, og hefir það sennilega orðið
þeim einhver stoð á heimleiðinni.
Svo er talið, að þeir hafi lagt af stað vestur
yfir fjallið á fimmtudegi og notað 2 næstu
daga til að safna fénu saman í Austurdal, en
fóru á laugardagskvöldið að Nýjabæ og gistu