Eimreiðin - 01.01.1926, Side 14
10
STJÓRNMÁLASTEFNUR
eimreiðiN
lyndið á uppsiglingu, og hafði að lokum náð því hámarki, a^
lengra er ekki unt að komast. Einstaklingarnir höfðu feng$
fult búsetufrelsi, verzlunarfrelsi, atvinnufrelsi og almennan
jafnan kosningarrétt í opinberum málum, með eignarrétt smn
friðhelgaðan af stjórnarskrárákvæði. Trúarbragðafrelsi og réttur
til almennrar barnafræðslu á opinberan kostnað mega og tell'
ast til afreka þessarar sömu stefnu. En áður en frjálslynda
stefnan hafði náð hámarki sínu, var, eins og ávalt vill verða,
stjórnlynda stefnan komin á stúfana í nýrri mynd. Sósíalista-
stefnan kom upp á Frakklandi og Þýzkalandi um miðja 19-
öld, með þá aðalkröfu, að einstaklingurinn léti af hendi að
miklu leyti atvinnufrelsi sitt og eignarrétt í hendur félagS'
heildarinnar. í staðinn fyrir frelsið og eignarréttinn lofar
svo stefnan áhangendum sínum opinberri stjórn á öllum a*'
vinnurekstri, sem tryggi hverjum manni lífsframfæri og öllum
jafnari kjör en vænta má í þjóðfélagi frjálslyndu stefnunnaL
Að því er snertir. hömlur á atvinnufrelsi manna og íhlutun
um efnahagsstarfsemi þeirra fer sósíalisminn að mörgu leyti enn
þá lengra í stjórnlyndisáttina en einvaldsstefnur 17. og
aldar. En hann er þeim frábrugðinn að því leyti, að sjálfa til'
högun stjórnarvaldsins tók hann óbreytta frá frjálslyndu stefn'
unni, almennan kosningarrétt, þingræði og þingkjör aeðstu
stjórnenda, annaðhvort beinlínis eða þá í reyndinni. Rúss'
nesku sósíalistarnir, sem hafa öðrum fremur fengið færi a
að
koma hugsjónum sínum í framkvæmd, hafa þó ekki bygt vald'
hafavalið á hinum almenna kosningarrétti.
í þessari nýju mynd hefur stjórnlynda stefnan verið á upP'
siglingu síðustu tvo mannsaldrana. Hún hefur magnast svo 1
ýmsum höfuðlöndum Norðurálfunnar, að lítið hefur á vantað,
að hún yrði ríkjandi, og í stærsta veldi álfunnar, Rússlandi>
hefur hún sezt að völdum. í sumum löndum hafa áhangendur
stefnunnar náð völdum um stund, t. d. í Þýzkalandi eft<r
heimsstyrjöldina, en hafa þó ekki komið aðalhugsjónum siH'
um í framkvæmd, annaðhvort af því, að þeir hafa ekki treys
á mátt sinn gegn þeirri mótstöðu, sem vita mátti, að umfo
þeirra mundi vekja, er til framkvæmda kæmi, eða af þv>> a
trúin á hugssjónir sósíalismans hefur verið sofnuð í brjóstun1
þeirra sjálfra.