Eimreiðin - 01.01.1926, Blaðsíða 26
22
BÓKMENTAVAKNINGIN SKOZKA
ElMREIÐlN
sé gaumur gefinn, sem ekki grundvallast á skynsamlegri o9
einlægri virðingu fyrir því, sem þjóðlegt er. Mér ber að Wa
lífi mínu, elska ættingja mína og átthaga, en jafnframt ber mer
að umgangast nágranna mína með vinsemd. Mér ber meö
öðrum orðum að vera góður borgari. Þess vegna er Þjóða-
bandalagið miklu réttlátara og heilbrigðara þjóðskipulag en
rómverska ríkið forna, þar sem alt snerist um einn miðdepil'
Þegar skyldar þjóðir eru reyrðar járnviðjum gerráðrar mið'
stjórnar, er bandalagið ekki heilbrigt. Gott dæmi þessa er þjóða-
samsteypan á Balkanskaganum. Sama má segja um samsteypur
þær frá 1707 og 1801, er gerðu Skotland, England og írlaná
að einni ríkisheild; árangurinn hefur aldrei orðið sá er skyld1,
Irska þjóðin er sérstakur kynstofn og unni aldrei sambandinn-
Ástæðan fyrir því, að írar losnuðu loks úr sambandinu við
Breta, var sú, að þessar þjóðir eiga ekkert sameiginlegt, sem
máli skiftir. Það sem kallað er Bretland er ekki heldur e,n
heild, því að Skotar og Englendingar eru enn gerólíkir, bmð1
að því er snertir trúarskoðanir, sögulega þróun alla og stjórn-
málaskoðanir. Skotar eru Kalvínstrúarmenn og alment frjáls'
lyndir í stjórnmálum. Englendingar iðka enn þá forna hels1'
siði og fornar trúarjátningar kaþólsku kirkjunnar, þó að þeir
viðurkenni ekki yfirráð páfa, og í stjórnmálum eru þeir einS
breyíilegir eins og ensk veðrátta.
Ensk tunga, sem hefur verið gerð að skyldunámsgrein |
skólum margra hinna yngstu ríkja, drotnar eins og harðstj°rl
yfir hugsun smáþjóðanna innan brezka ríkisins. Á írlandi ern
menn þó miklu betur settir í þessum efnum en við hérna a
Skotlandi, því írskar bókmentir eru miklu sjálfstæðari en skozkm-
Hvort sem það telst heimska eða hyggindi erum við að reyna
að forðast enska ánauð í andlegum efnum. Við dáumst að
því fagra í enskum bókmentum og enskri leiklist, en við 9e*’
um ekki tileinkað okkur þá list, sem ekki túlkar okkar þie^
egu viðfangsefni. Enskar bókmentir eru að vísu á máli, sen1
við notum við öll opinber tækifæri, en við arineldana heima’
þar sem hjörtun leggja tungunni til hugsanirnar, notum ^1,
orð og orðatiltæki, sem óþekt eru í ensku máli. Þetta a
einkum við um þau af okkur, sem ekki hafa alist upp 1 h’n
um stóru iðnaðarhéruðum landsins. Það er eftirtektarvert, a