Eimreiðin - 01.04.1926, Blaðsíða 20
100 STJÓRNMÁLASTEFNUR eimreiðiN
launuðu af embættismönnum landsins, og úr þeirra hóp valdi
danska stjórnin hina konungkjörnu þingmenn, sem löngum
skoðuðu sig fremur sem verndara hins erlenda valds á ÍS'
Iandi, heldur en sem borgara landsins sjálfs. Með þeim stóð
að verki nálega öll kaupmannastéttin, sem var að vísu að
miklu leyti erlend, en hinn innlendi stofn gerði litla stefnu-
breytingu í þeim efnum. í fótspor þessara forkólfa fylgdu all'
margir bændur í sveitum og við sjó, sem sættu sig við að
önnur þjóð hefði húsbóndavaldið á íslandi.
Nákvæmlega sama saga gerðist á 19. öldinni í tveim ná-
lægum löndum, sem voru háð erlendu valdi, Noregi og Ir'
landi. Frá 1814 til 1905, meðan Norðmenn voru í þvingunar-
bandalagi við Svía, vildi allur þrekmesti hluti þjóðarinnaf
vinna að fullkomnu sjálfstæði Noregs, en á móti stóð deisarl
hluti þjóðarinnar, sem undi sæmilega undirþjóðaraðstöðunni-
írska þjóðin skiftist á sama hátt, þar til eftir heimsstyrjöldina
miklu, að Englendingar sáu þann kost vænstan að gefa hinn>
langkúguðu þjóð einskonar sjálfstjórn.
Jafnskjótt og Norðmenn og írar höfðu fengið frelsi, önnur
þjóðin til fulls og hin að miklu leyti, leystust gömlu flokkarmr
upp eðá myndbreyttust. Nýir flokkar komu til sögunnar o3
greindi á um innanlandsmálin, alveg eins og í löndum, sem
lengi hafa notið fullkomins sjálfstæðis.
Nú skal þá víkja að hinni eðlilegu flokkaskiftingu, sen1
óhjákvæmilega myndast í stjórnfrjálsu, sjálfstæðu menningar'
landi nú á dögum. Til hægðarauka verður hér lýst flokka'
skipun Dana, af því að sú þjóð hefur lengi verið sják'
stæð, og ástæður þar í landi flestum fslendingum nokku
kunnar.
í Danmörku eru fjórir sjálfstæðir stjórnmálaflokkar: íhald5'
menn, vinstrimenn eða bændur, frjálslyndir menn og verkn'
menn eða socíalistar. Verkamannaflokkurinn er nú stærs*ur
þar í landi. Þá koma bændur, síðan íhaldsmenn, og mins*ur
er frjálslyndi flokkurinn.
Allir þessir flokkar eru í raun réttri stéttarflokkar. íhald5
flokkinn fylla flestir stóreignamenn í landinu og mikið 3
embættis- og verzlunarstéttinni. í vinstrimannaflokknum er
meginþorrinn af bændastétt landsins, þeir sem ekki tellaS