Eimreiðin - 01.10.1926, Blaðsíða 29
eimreiðin
SÁLARLÍF KONUNNAR
301
ast þetta getur hún framið hina heimskulegustu hluti og fært
íiinar stærstu fórnir. Á hinn bóginn verður þessi hvöt kon-
unnar til þess, að hún hefur meira taumhald á sjálfri sér, því
að flest getur hún betur borið en að vera dæmd hart af um-
hverfi sínu. Við uppeldi karlmannsins ætti að venja hann á
að taka tillit til þessara tilfinninga konunnar, því að hann
saerir hana oft á þessu sviði alveg að þarflausu. Lífið mundi
verða margri konunni stórum léttbærara, ef karlmaðurinn
Qætti þess eftir mætti, að særa ekki hina svokölluðu hégóma-
Sirnd hennar, t. d. með óþörfum útásetningum, eða saman-
turði við aðrar konur.
Ein aðalafleiðingin af hégómagirni konunnar er löngun
hennar til þess að vera tekin fram yfir alla aðra, að minsta
l<osti fram yfir allar aðrar konur. Hún hefur tilhneigingu til
að trúa því sjálf, að hún skari að einhverju leyti fram úr
öðrum konum, og henni er það sérstaklega mikils virði, að
hennar nánustu, þeir sem hún elskar og lifir fyrir, sjái þetta
°3 viðurkenni. Konur, sem notið hafa frægðar og álits heims-
■ns, t. d. fyrir ritstörf, hafa játað, að þær vildu skifta á frægð
sinni og litlum vinahóp, sem elskaði þær og dáði um fram
alt annað. Þessi löngun til þess að vera tekin fram yfir aðra
er ástæðan ti! þess, hve konunum hættir við að tala illa hver
um aðra, og það svo, að það er naumast, að þær þoli að
heyra annari konu hrósað, svo að þær þurfi ekki að bæta
einhverju lastyrði við. Þetta er einn hinn versti galli konunn-
ar, sem hún þarf að hafa opið auga fyrir og reyna til að
uPpræta eftir megni.
Enn eru fleiri afleiðingar hégómagirninnar. Hún fæðir af
sér öfund, afbrýðisemi og hefnigirni. Konan þolir ekki, að
önnur sé tekin fram yfir hana; hún þolir ekki, að aðrir elski
bann, sem hún elskar, og hún finnur fullnægingu í því að
hefna sín, þegar henni þykir ekki nægilegt tillit hafa verið til
s>n tekið. Þessir lestir finnast að vísu líka í fari mannsins, en
sjaldan á eins háu stigi, eins og hjá konunni. Móðirin er af-
hrýðissöm gagnvart tengdadótturinni og tengdadóttirin gagn-
Vart tengdamóðurinni. Konan hatar óvini manns síns meira
et> sjálfur hann, enda þótt hún hafi þá aldrei augum litið.
^essum skaplöstum konunnar er nauðsynlegt að reyna að