Eimreiðin - 01.01.1929, Page 94
74
FORNRITAÚTGÁFAN NV}A
EIMREIÐIN
gefnar úf í vönduðum útgáfum, og margt úr þeim hefur verið
þýtt á erlendar tungur. En nú er það nokkurnveginn víst, að
vér munum eignast fornritin í vandaðri útgáfu á næstu árum.
Nokkrir menn í Reykjavík hafa komið af stað stofnun útgáfu-
fyrirtækis í þessu augnamiði, og var stofnfundur haldinn 14.
júní síðastliðinn. Aður hafði framkvæmdanefnd þessa fyrirtækis,
sem þá var að vísu ekki formlega stofnað, sent út boðsbréf
til landsmanna, meðal annars um almenn samskot til útgáf-
unnar. Undirtektir manna hér í Reykjavík hafa orðið svo
góðar, að um 23.000 kr. hafa safnast hér í bænum, þegar þetta
er ritað. Auk þess hafa konungshjónin dönsku gefið 1200
krónur til útgáfunnar og heitið fyrirtækinu vernd sinni-
Undirtektirnar úti um land hafa orðið öllu daufari enn sem
komið er. Þó hafa um 800 krónur safnast þaðan, svo að
nú eru loforð fengin um rúmlega 25.000 krónur, og mikið
af því fé er þegar innborgað. Auk þess hefur hlutafélagið
Kveldúlfur lofað að leggja fram kostnað fyrirtækisins við
útgáfu Egils sögu Skallagrímssonar, og mun sá kostnaður
alls nema um 7000 krónum. Er ætlast til, að útgáfan verði
í 32 bindum, og mun þegar byrjað að vinna að undir-
búningi tveggja þessara binda, enda er ætlast til, að þau komi
út árið 1930. Verða þau II. og III. bindi í safninu, en I-
bindi, með íslendingabók, Landnámu, Eiríks sögu rauða,
Þorfinns sögu karlsefnis og Einars þætti Sokkasonar, mun
koma síðar út. í II. bindi er ætlast til, að verði Egils
saga, Gunnlaugs saga ormstungu, Gísla þáttur Illugasonar,
Hænsna-Þóris saga og Ðjarnar saga Hítdælakappa, en í IH-
bindi verður Eyrbyggja, Halldórs þáttur Snorrasonar, Laxdaela
og Stúfs saga. Myndir og uppdrættir munu fylgja, og verðuf
vandað til hvorstveggja eftir föngum. Tólf manna fulltrúaráð
sér um framkvæmdir, og hefur það þegar kosið þessa menn
í stjórn: Frumkvöðul málsins og aðalhvatamann, ]ón hæsta-
réttarlögmann Ásbjörnsson, forseta, Matthías fornmenjavörð
Þórðarson ritara, Pétur bóksala Halldórsson féhirði og sem
meðstjórnendur þá Ólaf prófessor Lárusson og Tryggva
forsætisráðherra Þórhallsson. Útgáfustjóri er ráðinn Sigurður
prófessor Nordal, en hinir aðrir meðlimir ráðsins eru þeir Árni
bókavörður Pálsson, Einar magister ]ónsson, Hannes þjóð'