Eimreiðin - 01.01.1929, Blaðsíða 52
32
UM NÁM GUÐFRÆÐINGA
eimreiðin
ekki hugmynd um trúaðra manna og trúlausra tilraunir til
þess að koma á siðbót í viðskiftum manna á síðari árum.
Kirkjunnar hlutverk er að lækna meinsemdir í sálarlífi ein-
staklinga og þjóða. Væri ekki kominn tími til, að hún reyndi
að læra eitthvað af öðrum læknum? Mér skilst, að læknis-
námið sé í því helzt fólgið að kynna sér mannlegan líkama,
starfsaðferðir hans op háttu. Læknisfræðin trúir því, að sjúk-
dómur verði ekki læknaður, nema því aðeins, að læknirinn
fái sæmilega hugmynd um, hvað sé að gerast í líkamanum.
Námið um sjúkdóminn botnlangabólgu er ekki fólgið í því
að rannsaka rit Hippokratesar til þess að komast að raun
um, hvort hann hafi þekt eða ekki þekt botnlangabólgu. Það
er heldur ekki nein læknisfræðileg villutrú að beita ann-
ari aðferð en Hippokrates kann að hafa notað til lækningar.
Og allra sízt er það nein goðgá, þótt reynt sé að sýna sjúkl-
ingnum einhverja líkn, þótt svo reynist, að sami Hippo-
krates hafi aldrei á þennan sjúkdóm minst. En þetta eru
Iæknisvísindin, sem ég lærði í guðfræðideildinni. Læknisúrskurð-
urinn er jafnan þessi: »Móse og Páll þektu báðir botnlanga-
bólgu vel. Þeir sögðu, að hún væri synd. Syndin er ljót-
Leggið hana niður. Hallelújah«.
IV.
Lesendur þessa tímarits kunna ef til vill að ímynda sér,
að lýsingin á blöðum þessum á þekkingarskorti ungra guð-
fræðinga sé orðum aukin. Ég get fullyrt, að svo er ekki. ÉS
get ekki verið með þau látalæti að telja sjálfan mig hafa
verið að neinum verulegum mun ófróðari eða naglalegr*
heldur en þorri þeirra manna, sem ég stundaði nám með.
Og það, sem ég hef skrifað, er sönn lýsing á minni eigiu
reynslu. En annars er hægurinn á fyrir almenning að átta
sig á, hvert sé gróðrarmagnið í boðskap kirkjunnar manna,
eldri og yngri. Til dæmis er ekki langt síðan út kom bók,
sem nefnd er »Hundrað hugvekjur, eftir íslenzka kennimenn1-
I þeirri bók hef ég verið að blaða síðustu daga.
Ég held ekki, að það sé kveðið neitt ógætilega að orði,
þó að sagt sé, að sá hugur hljóti að vera töluvert alvarlega
svefnstyggur, sem vaknar við þessa vekjaraklukku. Og svo er