Eimreiðin - 01.04.1929, Qupperneq 66
154
GUÐFRÆÐINÁM OG GÓÐ KIRKJA
EIMREIÐIN
hann standi alls óháður samtíð sinni, þjóð og þjóðarsögu, og
sé því örðugleikalaust að kynnast honum til hlítar, án þess að
átta sig á þeim jarðvegi, sem hann er vaxinn upp úr.
Ég furða mig á því, að heyra þessa skoðun af vörum upp-
lýsts nútímamanns og auk þess lærðs guðfræðings og í þriðja
lagi frjálslynds nýguðfræðings, sem ég þykist vita, að R. E.
Kv. sé.
Er hann búinn að gleyma því, að þannig hefur kristnin
boðað Krist, þ. e. óháðan sögurannsókn, alveg fram á síðustu
aldir, þegar söguleg biblíurannsókn tók í taumana. Ég held,
að R. E. Kv. lítilsvirði liðna tímann of mikið. Sú lítilsvirðing
hans er hér að leiða hann á villigötur, og loka augum hans
fyrir mjög þýðingarmiklu atriði, — ég vil leyfa mér að segja
einmitt því atriðinu, sem hann á mest að þakka frjálslyndi sitt
og víðsýni, þ. e. sögulegu rannsókninni á lífi ]esú. Hann
segir: »En það er einmitt eitt furðulegasta fyrirbrigði mann-
kynssögunnar, að Kristur er allra þjóða samtímismaður. Fyrir
þá sök rís hann eins og viti upp við strönd lífsins, að máttur
anda hans hefur rofið þokuna yfir hugsunum mannkynsins*.
Ég skal játa það, að þetta eru fögur orð og aldrei of vel
undirstrikuð. En hugsunina, sem í þeim felst, hafa allar
kristnar aldir hugsað áður, og á henni sem meginforsendu
hafa kristnir menn á liðnum öldum bygt ýmsar þær niður-
stöður, sem mestri ógæfu hafa valdið. Það hefur verið hinn
mikli ásteytingarsteinn liðinna alda og allrar afturhaldsguð-
fræði fram á þennan dag, að líta á Jesú hafinn yfir samtíð
og sögu, en reyna þó af fremsta megni að gera hann að sín-
um samtímismanni. Með því móti hefur Jesús guðspjallanna
verið grafinn undir dyngju af orðlegum hefilspónum frá trúar-
lærdómsverkstæði liðinna alda. Þeir menn, er hafa álitið hann
hafinn yfir sögurannsókn, hafa ætíð verið í mestri hættu
staddir að misskilja orð hans og afbaka. í viðleitni kynslóð-
anna við að gera Jesú að sínum samtímismanni hafa liðnar
aldir hrasað mest og gengið flest víxlsporin frá leið sanns
kristindóms. Lítum til dæmis á trúardeilur fornkirkjunnar.
Ekki vantar, að menn sjái þá Jesú »rísa sem vita upp við
strönd lífsins«, — deilurnar snúast blátt áfram um guðdóm
hans, — og aðal-yndi þess tíma, að fást við hlutlaus (abstrakt)