Eimreiðin - 01.01.1935, Blaðsíða 84
72
MÁTTARVÖLDIN
EI5IREJÐIJÍ
Hver maður hefur þrjá líkama, efnislíkama eða jarðneska lík-
amann, geðlíkama eða sálarlíkamann og ljósvakalíkama eða
andann.
Fram á sanngildi endurholdgunarkenningarinnar hef ég
einnig sýnt í síðasta erindi mínu, með mjög sterkum rökum.
Eg hef reynt að fá lesandann til að hugsa rétt og gera
hann færan um að velja vandlega efnið í myndina, áður en
hann málar hana upp í huganum. Ef lesandinn aðeins vill
fylgja ráðum mínum, mun hugar-mynd hans vcrða máluð
meistaralegum litum, og hæði skýr og þróttmikil. Þá verður
hugsunin að veruleika, og lífið mun þá loks verða skilið af
þvi mannkyni, sem nú er í uppnámi og leitar árangurslaust
friðar. Þá mun því opinberast vegurinn til varanlegs friðar
og sannrar hamingju, ósvikins máttar og óskeikuls veldis.
Þegar þú ferðast til útlanda, þá kynnirðu þér áður alt,
sem viðkemur ferðalaginu, svo sem um staði þá, seín þú hygst
að dvelja á, og hvar hagkvæmast sé fyrir þig að gista. Þetta
er nauðsynlegt. En hversu miklu nauðsynlegra er þá ekki
að kynna sér alt, sem lýtur að sönnu eðli sjálfs lífsins og
annars heims! Þér munuð öll ferðast inn í þenna annan heim
fgv cða síðar. Það er sama að vita elckert um þenna heim eins
og að vera kastað út í „myrkrin fyrir utan“, sem talað er um
í ritningunni, að sé aðsetur ólýsanlegrar syndar, sorgar og
þjáningar, vegna þekkingarleysis um máttarvöldin. Búið yður
því vandlega undir þá ferð andans, sem fram undan er, því
innan stundar, og jafnvel óvænt, verður jarðlíf yðar tekið frá
vður og' þér vitið ekki hvað hefur hent yður eða livað á að
gera. Ef þér efist um þessi orð mín, þá býð ég yður að lesa
hililíuná, eins og hún er, án allra falskra mannasetninga, því
ef þér gerið það, þá munu augu anda yðar opnast, og þér
munuð i sannleika skilja lögmál guðs og hans orð. Lesið um
þau sannindi og' hættið að lifa í paradís heimskingjans.
Friður sé með yður!
Alexander Cannnn.