Eimreiðin - 01.04.1941, Qupperneq 24
136
KIRIÍJUGJALDIÐ
EIMREIÐIX
skulum við reyna að láta hann borga, án þess að þú þurfir að
fara aftur til hans. Guð mun refsa yður, sagðir þú. Ef ég
þekki Böðvar skólabróður minn rétt, þá hugsar hann meira
um þessi orð þín en þig kannske grunar.
Þegar ldukkan slær eitt daginn eftir, ekur Böðvar Brandsson
læknir hinum gljáandi bíl sínum suður með hinu stóra verzl-
unarhúsi, þar sem hann hefur lækningastofu sína. Hann fer
út úr bifreiðinni, læsir henni vandlega, gengur í kringum
hana og strýkur ánægjulega vfir gljáandi lakkið. Um leið og
hann opnar bakdyr hússins, snýr hann sér við og sendir „vini“
sínum ennþá eitt hrennandi augnatillit. Þegar hann kemur inn
í lækningastofuna, fer hann úr þykka vetrarfrakkanum og í
drifhvítan slopp. Hann snyrtir sig lítið eitt fyrir framan speg'il,
sem hangir á veggnum, svo brosir liann ánægjulega.
— Mikill hlessaður kuldi var þetta, hörkufrost — og afar
slæmt kvef. — Hann brosir aftur. Nóg að gera og nóg af pen-
ingum. Þvílíkur blessaður kuldi! Bezt að opna biðstofuna.
Hann gengur fram og snýr lyklinum í hurðinni og skýzt svo
aftur inn í lækningastofuna. Böðvar læknir sezt og virðist
önnum kafinn við að skrifa. Ef að vanda léti, var nú biðstofan
orðin full af fólki.
En fimm minútur líða og aðrar fimm, en hann heyrir engan
koma. Hvernig stóð á þessu? Ef til vill var klukkan hans of
fljót. Hann híður, en þegar klukkan er hálf tvö, fer hann fram.
Stofan er tóm. Hafði hann þá alls ekki opnað? Jú. — Hann
fer aftur inn og tekur að hugsa málið. Enginn sjúklingur og
hálftími liðinn af heimsóknartimanum. Karlskrjóðurinn með
kirkjugjaldið kom heldur ekki. Böðvar læknir hlær. — Ég
hef sjálfsagt látið hann skilja það fyllilega, að ég borga ekki
svoleiðis óþarfagjöld. — Uss, ekki nema það þó. Hvað var það
nú, sem karlinn sagði? „Guð mun refsa yður.“ Hann hlær
kuldalega. En hvers vegna kom enginn? Hann bíður, hlustar
og hugsar. — Guð mun refsa yður. — Guð mun refsa yður.
— Gat það verið?
Fjórir dagar líða svo, að enginn sjúklingur kemur á hið-
stofu Böðvars Brandssonar læknis. Nokkrir hringdu og báðu