Eimreiðin - 01.04.1941, Síða 56
168
ÁHRIF HEBRESKU Á ÍSLENZKA TUNGU
EIMREIÐIN
verjum, en hinir tíu eru handan við Evfrat allt til vorra daga
og eru mjög fjölmennar.“ Sargon konungur taldi sjálfur, að
fangar þeir, sem hann lét flytja burtu úr Ísraelsríki, er það
var eyðilagt, hafi verið 27290 (og eru þá sennilega aðeins taldir
karlmenn, ekki konur og börn). í annari Esdrasbók, sem er
ein af hinum svonefndu „aprokrýfisku" ritum Gamla-testa-
mentisins, í 13. kap. 40—45 versi, segir svo: „Þetta eru þær
tíu ættkvislir, sem voru fluttar burtu sem fangar úr þeirra
eigin borgum á dögum Hósea konungs, sem Salmanassar, kon-
ungur í Assýríu, flutti burt sem fanga, og hann fór með þá
yfir fyrir fljótin, svo að þeir komu í annað land. En þeir héldu
innbyrðis ráðstefnu um það að yfirgefa samfélagið við heið-
ingjana og fara burtu til fjarlægra landa, þangað sem enginn
maður hefði enn búið, til þess að þeir gætu þar varðveitt
boðorðin, sem þeir höfðu aldrei haldið í þessu landi. Og þeir
héldu yfir Evfrat, þar sem hún var mjóst. En drottinn sýndi
þeim undarlega hluti og stöðvaði fljótið, meðan þeir gengu
yfir. En það var löng leið að fara um þetta land og tók þá
hálft annað ár. Þá komu þeir til héraðs þess, er nefnist Ar-
Sareth. Þar dvöldu þeir svo til síðustu tíma.“ Ar-Sareth er
héraðið norður af Svartahafi, og enn i dag er þar á, er Sareth
nefnist.
Herodót, sagnfræðingur Grikkja, getur þess, að um þær
mundir, sem Esdras segir frá, hafi stór þjóðflokkur, sem áður
bjó ^ið Araxes, flutt til Evrópu og setzt að fyrir norðan
Svartahaf. Þessa þjóð nefnir hann Skýþa, og er það sameigin-
lega nafnið, sem Grikkir og ítalir nefna þjóð þessa, enda þótt
þeir nefni ýmsa hluta hennar öðrum nöfnum.
Það kemur oft greinilega í ljós, að Assýríumenn nefndu ísra-
elsmenn þá, sem fluttir voru austur til Assýríu, Kumri, en
Babýloníumenn nefndu þá Gimri eða Gimiri. en Persar Saka,
þvi á hinum fræga Behistun-steini í Persíu, þar sem áritunin
er á þremur málum, babýlonisku, persnesku og súríönsku, er
babýloniska nafnið Gimri þýtt með Saka á persnesku, en fornu
sagnfræðingarnir Herodót, Pliníus, Mela o. f 1., segja frá þvi,
að Persar hafi nefnt Skýþa Saka.
ísraelsþjóðin, sem flutt var í útlegðina, er því nefnd ýms-
um nöfnum á ýmsum málúm, en á grísku og latínu Skýþar.