Eimreiðin - 01.04.1941, Qupperneq 68
eimreiðin
Um skarfakál.
Þessi heilnæma manneldisurt, sem Ólina sál. Andrésdóttir telur
i undanfarandi grein vera liollasta og l.júffengasta ætijurt, sem vex
hér á óræktuðu landi, aðra en fjallagrösin, er nú af læknum og
heilsufræðingum ráðlögð mjög til margvíslegra meinabóta, og
sannast hér sem oftar, að vísindin vcrða að lokum að viðurkenna
alþýðutrú og gömul þjóðráð, þó að áður hafi jafnvel hindurvitni
talizt. Læknar hvetja fólk til að nota jurt þessa sem mest til mann-
eldis, og ætti þess ekki að vera hvað minnst þörf nú á ófriðar-
timum, er mjölmatur er takmarkaður og innflutningur allrar korn-
vöru erfiðleikum háður. En þar sem ég hef orðið þess var, að
margir, sem annars hafa hug á að ná i jurt þessa, ýmist þekkja
hana ekki eða vita ekki hvar henuar er helzt að leita, er hér stutt
lýsing, að mestu eftir Flóru íslands, á jurt þessari ásamt mynd
af henni.
Skarfakúl (C. officinalis L.) er um 20—50 cm. á hæð og blómg-
ast í mai—júní. Stöngullinn er uppsveigður, oft talsvert hugðóttur,
stórgáróttur og meira eða minna
greindur og oftast fleiri stönglar en
einn á sama stofni. Stofnblöðin eru
mörg saman í hvirfingu, stilklöng, nýr-
laga eða hjartalaga, heilrend eða smá-
bugðótt. Stöngulblöðin eru aftur á móti
stilklaus og oft mjög breytileg að lögun.
Krónan er hér um hil helmingi lengri
en bikarinn, og slær stundum á hana
rauðleitum hlæ, en skálparnir hnatt-
egglaga, nokkuð taugaberir, lielmingi
styttri en skálpleggirnir eða meir.
Skarfakál vex helzt í feitum áburðar-
miklum jarðvegi við sjó, í varpeyjum
og fuglabjörgum, svo og í kringum bæi-
Tilbrigði jurtarinnar eru kunnust þrjú:
var. groenlandica á Snæfellsnesi og víðar, var. oblongifolia, algeng
kringum bæi í Strandasýslu og viðar, og var. arctica á útnesjum á
Norðurlandi og í Viðey. Aðaltegundin C. officinalis er talin algeng
í öllum landshlutum. Ætti af lýsingu þessari og mynd að verða
auðvelt að þekkja jurt þessa þeim, er ekki þekktu hana áður, og
hún að komast aftur til þess vegs, er hún áður naut, og verða
eftirsótt sælgæti um allt land. Sv. S.