Eimreiðin - 01.04.1941, Page 75
EIMREIÐIN
KUKL
187
gatuni vér trúað, að nokkur prestur — vitandi vits — g'engi
þannig af hinum rótta vegi, til að beygja kné sín fyrir höfðingja
Qiyrkranna, hvers nafn vér skirrumst við að liera oss í munn.
Ln þvi miður hefur tíminn leitt í ljós, að um hræðilega villu
er að ræða, því hræðilegri sem sá, er villunni veldur, hefur
gegnt ábyrgðarmikilli stöðu — ég leyfi mér að segja: hinni
abyrgðarmestu, sem dauðlegum manni er á hendur falin. Þessi
Prestur, er vera átti leiðtogi síns lýðs og hirðir sinnar hjarðar,
liefur látið glepjast af vélabrögðum óvinarins, sem aldrei
Jneytist á að legg'ja tálsnörur sínar fyrir syndugt hold.
Þessi prestur hefur fallið frá hinni lifandi sáluhjálplegu
1111 > sem ein megnar að græða holdfúasár syndarinnar með
blóði hins blessaða lambs, og hann hefur tekið að hoða og
leggja stund á breytni og kenningar, sem leiða norður og niður
1 næturríki glötunar og guðsafneitunar. Hann hefur snúið baki
hinum blessaða brunni hjálpræðis og svölunar, en leitað
íulltingis þeirra myrkravalda, sem trúuðum ber að forðast
Sem eld hrennandi. Hann hefur talið sér og öðrum trú um, að
llann á dularfullan hátt geti læknað þau mein, er mönnunum
l’jaka. Á þann hátt hefur hann viljað taka fram fvrir hendur
hins almáttuga, en á því er enginn vafi, að þessar tilraunir
eiu sprottnar af þeirri eitruðu rót, sem óvinurinn gróður-
setur i sálum breyskra og villuráfandi manna, til að leiða þá
111 ireistinga og glötunar, á þann hátt að láta þá nota óheilbrigð
meðul til framkvæmda þeirra hluta, sem drottinn einn hefur
1 eitinn til að framkvæma. í stuttu máli, þessi prestur hefur
tieiið sig á vald freistarans og farið með kukl og forneskju,
Sem öllum trúuðum er hneyksli og andstyggð. Allir munu
skilja hver voði hér er á ferðum og hversu nauðsynlegt er að
v(,nia i veg fyrir vöxt og viðgang þvíliks illgresis á akri kirkj-
nnnar; þess vegna hefur stjórn þeirri, er forsvar hefur í Sam-
mlagi Rétttrúaðra manna, komið saman um að bera fram fvrir
P'ngið ályktun og vonar að fá hana samþykkta í einu hljóði,
Gn u®ur en ályktunin er borin upp, þykir oss hlýða að lýsa
1 áheyrn þingsins, að nafn prestsins, er hneykslinu veldur,
01 Ih'andur Gestsson. Hann hefur um allmörg ár þjónað einum
‘ sof'nuðum vorum, en eins og öllum er væntanlega skiljan-
e&h ieknr kirkjudeild vor enga ábyrgð á sig vegna breytni