Eimreiðin - 01.04.1941, Qupperneq 126
238
RITSJÁ
eimreiðin
nútiðarmanna. En þessi liálf-brjál-
aði vesalingur var stílsnillingur
mikill, og þó að trúarlif hans hefði
oftast meira af dölum fordæming-
arinnar að segja en af tindum fagn-
aðar og friðar, þá sýnir próf. Xor-
dal fram á, að liann hafði einnig af
að segja augnablikum hugljómunar
og eilífðarvitundar. Sérstaklega
finnst mér merkilegt atvikið um
gömlu konuna, sem sira Jón sá „um-
myndast". Þeir, sem eitthvað líkt
hafa reynt, munu skilja, að hér er
satt frá sagt.
I'að er áreiðanlega rétt iijá próf.
Nordal, að trúin var ]iað lífakkeri,
sem varnaði því, að sira Jón missti
að fullu og öllu stjórn á „sálarskipi"
sinu og strandaði algerlega á skeri
hrjálseminnar. Þó að þessi trú væri
blandin iijátrú og hindurvitnum, var
hún sú hjálparhella, sein dugði.
Hugleiðingar próf. Nordals um
ýmsar tegundir trúarreynslunnar og
trúarlífsins yfirleitt eru hæði gáfu-
legar og djúpsæjar og hera vott um
þann skilning á slíkum efnum, sem
er þvi miður of sjaldgæfur á þess-
arri hleyþidómanna öld.
Jakob Jóh. Smári.
SiijurSur Thorlacius: iim loftin
blá. — Útgefandi: ísafoldarprent-
smiðja h. f.
Þetta er hók, í sögu- eða ævin-
týrs-formi, um fuglalif á íslandi, og
segir ]>ar aðallega frá æðarfuglinum,
en ýmsir aðrir fuglar koma þó við
söguna, svo sem krian, örnin, fálk-
inn, tjaldurinn o. s. frv. Er lýst lifi
þessarra fugla, sorg þeirra og gleði,
— liættum þeim, sem sifellt vofa
yfir, og yfirleitt þvi hetjulífi, sem
villifuglarnir lifa, jafnvel þeir, sem
sizt eru taldir hetjulegir að öllum
jafnaði. Er frásögnin öll hin
skemmtilegasta og fróðleg mjög
fyrir þá, sem vilja lifa sig inn 1
ævireynslu okkar vængjuðu vina. Er
hókin einkuin tilvalin lesning fyrir
hörn og unglinga, til þess að vekja
ást þeirra og skilning á náttúrunni,
enda mun hún ætluð þeim alveg sér-
staklega. Er þetta önnur útgáfa hók-
arinnar, og ber það vott um vin-
sældir liennar. f henni eru og nokkr-
ar ágætar myndir.
Jakob Jóh. Smári.
Armann Kr. Einarsson: Gull-
roðin ský. Se.v ævintýri handa
börnum. — Vikingsútgáfan, I9i0.
Ævintýri þessi eru mjög lagleg og
vel til þess löguð, að glæða hjá
hörnum góðar hugsanir og vclvild
til manna og dýra. Það er mikill
vandi, að skrifa á þann veg, að hörn-
um hæfi, en mér virðist höf. hafa
viðasthvar fundið hinn rétta tón, —
komizt hjá of mikilli tilfinninga-
vellu, sem hörnum er yfirleitt illa
við, þvi að þau eru um frain allt
raunsæ og skynja kaldhæðni veru-
leikans oft hetur en margir full-
orðnir. Helzt þykir mér vanta 1
ævintýri Jiessi meiri gamansemi og
glettni en þar er að finna.
Jakob Jóh. Smári.
Heilbrigt lif. Rauði kross íslands
hefur hafið útgáfu timarits, með
Jiessu nafni, og er ritstjóri tíma-
ritsins dr. Gunnlaugur Claessen-
Hefur 1. liefti ritsins nýlega verið
sent Eimreiðinni til umsagnar.
í formála, sem Gunnlaugur læknir
Einarsson, formaður Rauða kross
íslands, ritar, eru færðar til fjórar
ástæður til útgáfuniiar: í fvrsta lagi
eigi ritið að hæta lir hrýnni þörf al-