Eimreiðin - 01.04.1947, Page 14
86
HEKLUGOSIÐ 1947
EIMREIÐirí
Þetta var klukkan 6,48. Mun þá Heklugjá liafa opnazt. Hófst
gosið nú fyrir alvöru með gný miklum og leiftrum. Gaus bæði
loftkenndum og föstum efnum úr liinni 5% kílómetra löngu
sprungu. Náðu mekkirnir fellibylsliraða og bófu sig á skamini'1
stundu upp í liáloftin, náðu um skeið 20—25 kílómetra liæð.
Gosmekkirnir voru að mestu óbreyttir klukkan 7. Var þ11
toppur Heklu alveg liorfinn í sortann. Snarpur vindur blés af
norð—norðvestri, lók bann brátt að beygja gosmekkina í suðurátt,
eða litlu austar. Hvoldusl þá á næstu tveim tímumi milljónir ten-
ingsmetra af ösku og vikri yfir vestanverð Vatnafjöll, Fljótshlíð
innanverða og Eyjafjöll, milli Markarfljóts og Skógár. Jafnvel
í Vestmannaeyjum varð brúnamyrkur af öskufalli, og viktirinn
féll svo ofsalega, að dyngjur flutu á sjónum. Ösluðu skipin 1
gegn um brannirnar meðfram miðbiki Suðurlands.
Ég bygg, að Islendingum bregði manna minnst við vofeifleg11
lduti. Mun sá eiginleiki liafa þroskazt í langvarandi viðureign
við hamslaus náttúruöflin. Ætla mátti, að gos þetta gæti hafl
í för með sér ógnir og jafnvel tortímingu. Þrátt fyrir óvissum'
var fólkið rólegt þessa morgunstund, einnig á hættusvæðinU,
þar sem aska og vikur féll sem þéttast, svo að nam 5—15 em-
á sléttlendi.
Tveim tímum eftir að gjáin opnaðist, byrjaði hraunrennsb
úr 6 aðalgígum. Liggur nærri að álykta, að askan og vikurinn
hafi myndazt sem froða á yfirborði gosefnanna, er leituðu útrásar-
ÖIl þ au firn af ösku og vikri, sem þannig liafa myndazt, þeyltust
út í buskann, um leið og gjájn opnaðist. Margt befur ógnar-
máttur gossins rifið með sér. Til dæmis fundust vikurflikki,
200—700 gramma þung, í 10—15 kílómetra fjarlægð frá eldstöðv-
unum. Verður því skiljanlegt, að áður fyrr dauðrotaðist fólk og
fé í mikilli fjarlægð. Árið 1693 gaus Hekla ægilegu gosi, 18 bæir
í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu lögðust í eyði, og aunáhir
segja: „Steinar á stærð við liús féllu niður mílu vegar frá fjallinu,
og nærri Skarfanesi á Landi (15 km. frá Hekhi) kom niður
glóandi steinn, nokkurra faðma að ummáli, og sprakk sundur
í mola í fallinu". Þá gusu 14 gígar í Heklu.
Það var beppilegt, að búsmali bænda var við hús, er gosið hófst
snemma morguns. Fjalllendið umhverfis Þrífjöll, Vatnafjöll og