Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1947, Side 30

Eimreiðin - 01.04.1947, Side 30
102 LÍFSÞÆGINDI OG LÍFSHAMINGJA EIMREIÐltf unni. Það liggur við stundum, að maður freistist til að trúa oflM- ungnum, sem sagði eitt sinn, að það væri hægt að koma á frai»' færi hvaða viðvaningi sem væri og hvaða gutli sem væri, aðei»s með því að vera nógu harðskeyttur í áróðri og auglýsingaskrunU' Mörg dæmi úr þjóðlífinu styðja þessa fullyrðingu. Það er eit* af eftirtektarverðustu einkennum ómenningarinnar, hve mikið ber á skruminu: List er það líka og vinna lítið að tæta upp í minna, alltaf í þynnra þynna þynnkuna allra hinna. Vér megum vera á verði, ef hið napra háð þessarar alkunin1 vísu verður ekki orðið að fúlustu alvöru áður en varir. Svo tíH er nú skrumað af því, sem lítið er eða ekkert orðið, — oft, ekki einu sinni byrjað að framkvæma. Þetta er að verða íþrótt. Sögu þjóðanna má líkja við mikla hergöngu. Á þeirri göng" skiptast á sigrar og ósigrar. Hergangan mikla, sem íslenzka þjóði" lióf fyrir ellefu öldum, liefur orðið tafsöm og erfið. Margt hefiT til trafala orðið á hinni löngu leið. Máttugir óvinir liafa setið f fleti fyrir í hinum ytra lieimi. Hið innra með sér hefur þjóðn1 oft verið ósamtaka og sundurþykk. Hljóðfallið í þjóðsöng henna1 hefur verið of hikandi. Þegar það verður taktfastara, má væiita góðra tíðinda. Tempo di marcia fer vel við fagran þjóðsöng ^il taktur sýnir samtaka þjóð. En framþróunin er þegar orðin mikil. Lífsþægindin liafa auk- izt stórkostlega. Á þetta mun verða bent og er bent. Það er því ekki úr vegi að athuga nokkru nánar, hvað þessi framþróun er í raun og veru. Þróunin er í framfaraátt, þegar hún gengur út á það að geril mennina óháðari uinhverfi sínu og veita þeim aukið vald yf,r því. Þannig mundu bæði þeir, sem gert liafa efnisliyggjuna lífsskoðun sinni, og jafnvel aðrir, skýrgreina hugtakið framþróiui- En saga lífsins á jörðunni sýnir og sannar oftlega, að þróuni" hefur hvergi nærri alltaf verið fram á við. Hún hefur stundun' verið aftur á bak eða niður á við. Talið er iiokkurnveginii vísL uð frumstæðasta lífveran, sem vér þekkjum, einfrumungarnir’ hafi lifað allt fram á þenna dag með litlum eða engum brey1" ingum, frá því að lífverur urðu fyrst til á jörðunni. Dæmi eru til

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.