Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1947, Page 68

Eimreiðin - 01.04.1947, Page 68
140 RÆÐA HERPRESTSINS eimreiðin Mestallt líf okkar fer í eftirsókn eftir einskisverðu hjómi. Til- finningar okkar hafa sljóvgast svo, að við girnumst ekki einu sinni konur lengur í fullkominni alvöru! Menn para sig aðeins, á sama hátt og þeir éta: græðgislega, en án hinnar gömlu, helgu gleði. Lífið er mestmegnis öskur og æðisgenginn liraði, froða og bull! En undir niðri dylst óskin um útþurrkun. Manneskjan er komin svo langt frá eðli sínu, að hún leitar ósjálfrátt dauðans. Yið höfum hamazt við að skemmta okkur, þangað til ánægja og gleði eru gleymdar kenndir. Við eruin þess ekki lengur umkomin að átta okkur á þeim eldforna sannleika, að samfélag við náttúruna og eðlilegt líf er leiðin til að skynja skapara lífs- ins. Barnið, sem hlær, lækurinn, sem rennur, aldp við strönd, sól og stjörnur, varmi hins elskaða maka, — allt eru þetta tilvísanir á hinni réttu braut, brautinni einu! En við sullum í okkur eitri á kaffihúsunum og fjarlægjumst æ meira hið skap- andi líf. — Meðan vísindin gláptu iir sér rauðar glyrnurnar á áhrif „Oedipus-kompleksins“, týndum við ást og tryggð. Við gerð- um úr líkaina okkar skurðgoð, sem við tilbáðum með saurlifnaði, en gleymdum, að líkami er því aðeins fagur, að í lionum biii fögur sál! — Að vísu erum við orminum h'kir, sem étur án afláts. En gamla fólkið, sem þakkaði guði fyrir matinn, helgaði með því liina frumstæðu athöfn og hóf sig yfir maðkinn! Við höfum borizt undan oki margháttaðrar kúgunar, iiefðar og vana. En um leið gerðumst við þrælar ólieilbrigðra lífsliátta og forheimskunar, sem leiddi okkur í aðra villu, verri hinni fyrri. Þegar lirint var oki konunga og mergfúinnar kirkju, tók efnishyggjan við! Gasprandi, lirokafullir og þröngsýnir ábyrgð- arleysingjar terrórísera liugsanalieim þjóðanna með efnishyggju- slefi, sem er blandað liinni viðbjóðslegustu öreigarómantík. Allir, sem ekki jarma með þeim, eru öskraðir niður sem ídjótar og fjandmenn hinna vinnandi stétta! Það er lákurænt fyrir þessa menn, að fæstir þeirra vinna nokkru sinni ærlegt liandtak, enda eru þeir í lijarta sínu svarnir andstæðingar lieilbrigðrar jafnaðar- stefnu. I því eina landi, sem komið liefur á sósíalisma, er h'ka löngu búið að skjóta þá alla, eða þagga niður í þeim á annan hátt! — Þess var getið, að þrátt fyrir allt ætti manneskjan sér drautn um tign og fegurð, er hún sífelt væri að reyna að gera raunveru- Jegau. Þetta er satt •— og fyrir honum erum við nú að berjast,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.