Eimreiðin - 01.01.1949, Page 48
40
NORÐAN OG AUSTAN
EiMREr^ir1
í etað þess að verða að bíða og bíða eftir því, að geymslur Græn-
metisverzlunarinnar inni í Reykjavík geti smátt og.smátt tekið
við uppskerunni. Hafa stundum miklar frostskemmdir og töp
orðið afleiðingar af þeim drætti, t. d. í liaust og vetur.
Við gistum í Borgarfirði og skoðuðum gróðurhús í Deildar-
tungu, Laufskálum og Sólbakka um morguninn. Við sáum allmarga
vöxtulega banaua, en einkum eru „epli lslands“, tómatarnir, rækt-
aðir í gróðurhúsum Borgfirðinga. Eru tómatarnir hollir og fjör-
efnaríkir. Börn verða fljótt sólgin í þá. Ættu foreldrar að hafa
Frá gróðrarstöSinni á Hafursá, Fljótsdalshéraði.
hugfast, hve þeir eru stórum lieilsusamlegri en t. d. brjóstsykur
o. fl. „sleikjusælgæti“, sem líka kostar peninga. Kappræktaðar
jurtir verða oft viðkvæmar, ekki sízt í liitabeltisloftslagi gróður-
tiúsanua. Rótarormar eru þar versta plágan. Moldarskipti eru dýr
og vinnufrek, en duga í bráðina. Reynt er að dæla eiturlyfjum í
moldina ineð odddælum, en liefur gefizt misjafnlega.
Sumir eru svo vel settir að geta veitt sjóðandi vatni inn í húsin
og ráðið þannig niðurlögum ormanna. Erlendis tíðkast víða að
gufusjóða moldina annað hvort ár. Eykst uppskeran stórum við
það. En hér vantar ennþá hentugan, færanlegan gufuketil til
þeirra aðgerða. Kemur sá útbúnaður fyrr eða síðar.
Gróðurhús í Borgarfirði munu alls vera um 8000 m2, eða tæpur
hektari að stærð. Færa þau drjúga björg í bú. 1 Mosfellssveit og