Eimreiðin - 01.01.1949, Page 84
76
RITSJÁ
EIMREIÐlN
Lourdes, scm er ágæt, en lýsing G. J.
er engu lakari. — Eftir þaiV höldum
\-ið áfram um Sudiir-I’rakkland til
margra fornfrægra sta3a og sveita.
Eg vil geta þess, aö' mjög margar
ágætar niyndir eru í bókinni. Virdast
þær vel valdar og vel prentaöar, því
pappír er allgóöur og yfirleitt vandað
til útgáfunnar, þótt prentvillur séu
fáeinar. Kostur er það, að höfundur
tilgreinir jafnan, livernig bera á fram
hin frönsku nöfn.
En ég verð einnig að geta þess, sem
mér finnst óprýða þessa hók, þótt það
sé óviðkomandi furðum Frakklauds.
Það er ýmislegt af því, sem stendur
á fyrstu 64 bl6. bókarinnar, en í þeim
kafla segir höf. frá dvöl 6inni í Eng-
landi, sérstaklega í London. Andúð
höf. á Bretum er svo augljós, að um
það vcrður ekki villzt, og vildi ég
óska þess, að liann hefði sleppt þess-
iim kafla, enda kemnr liann Frakk-
landi ekkert við. Það má lofa einn
án þess að lasta annan, og mér
finnst, að ef G. J. hefði langað til
að segja Bretum til syndanna, þá
liefði hann átt að gera það á öðrum
vettvangi.
Prófessor A. Jolivet í París ritar
formála og segir m. a., að hann telji
Furður Frakklands með gáfulegustu
óg skemmtilegustu bókum, sem rit-
aðar hafa verið um Frakkland.
Þorsteinn Jónsson.
Victor Hugo: MARÍUKIRKJAN I
PARÍS. Björgúlf ur Ólafsson íslenzk-
aSi, Rvk. 1948 (H.f. Leiftur). —
Þessi ínikla skáldsaga er 518 bls. í
Eimreiðar hroti. Sannarlega er það
þrekvirki að leggja út í að þýða slíka
bók. Geri ég ráð fyrir, að Björgúlfur
Ólafsson læknir liafa þýtt úr frum-
málinu. Fyrir löngu las ég bókina á
dönsku, sviplitla og tilþrifalausa þýð'
ingu. Er ólíku saman að jafna og
nærri því eins og hér sé uni aðra
skáldsögu að ræða, svo vel finnst
mér þessi þýðing gerð. Ekki á ég
hókina á frönsku, enda enginii
frönskumaður, svo ég get ekki dænit
um þýðinguna í samanburði vi»
frummálið. Victor Hugo er talinn sa
franskur höfundur, er mest áhrif
liafði á bókmenntastefnu Frakka, og
jafnvel fleiri þjóða, á nítjándu öld,
a. m. k. þangað til raunsæisstefnan
tók fyrir alvöru að ryðja sér til rúins,
og verður bann talinn í flokki fremstu
skáldsagnaböfunda Evrópu. Málskrúð
hans, orðkynngi og orðamergð er
með afbrigðum, og úr söguefnum
vinnur hann út í yztu æsar. Sagt er,
að Shapespeare liafi skapað nýja
enska tungu. Margir telja, að Hugo
hafi myndað nýja franska tungu.
Það verður að telja vel farið, að
öndvegisrit lielztu rithöfunda heinis-
ins séu þýdd á góða íslenzku, og ber
því að fagna því, að þessi bók er
komin fram í góðri útgáfu, og fremur
ódýrri, eftir stærð. Björgúlfur læknir
er ágætur rithöfundur. Allt, sem lianu
skrifar, er fagurt og lifandi, livort
sem það er frumsamið eða þýtt. Von-
andi á hann eftir að auðga bókmennt-
ir okkar með mörgum góðuin bókuin
cnnþá. Þorsteinn Jónsson.
GULLÖLD ÍSLENDINGA, bókin uin
menningu og lífshætti feðra vorra a
söguöldinni, eftir Jón Jónsson Aðils.
kom út i vandaðri nýrri útgáfu a
liðnu ári. Kostnaðarmaður þessarar
annarar útgáfu er Þorleifur Gunn-
arsson, forstöðumaður Félagsbók-
liandsins í Reykjavík. Fyrsta útgáfan
kom á bókamarkaðinn fyrir 43 árum
og cr uppseld fyrir löngu.