Eimreiðin - 01.10.1949, Blaðsíða 5
EIMREIÐIN
Október—dezember 1949 -.— LV. ár, 4. hefti
..Oíi:. 1 . ■; Í.) íi
Við þjóðveginn. í
21. dezember 19-19)
Gamla árið kveður með dapurlegum endurminn-:
ingum um kreppu, dýrtíð og vaxandi verðbólgu, al-
þingiskosningar, sem engu björguðu, og erfiðar fæð-
ingarhríðir að nýrri ríkisstjórn, sem nú hefur tekið
við af þeirri þriggja flokka stjórn, sem fyrir var. Þegar
Ölafi Thors, formanni Sjálfstæðisflokksins, hafði tekizt
að mynda minnihluta stjórn úr þeim flokki, eftir að
allar tilraunir til myndunar stjórnar með stuðningi
meiri hluta þings höfðu mistekizt, kepptust formenri
hinna þingflokkanna þriggja við að afneita henni, með
riiisjafnlega smekklegum forsendum að vísu, en lystu
bó andstöðu sinni allir frammi fyrir þjóðinni, af mikilli
riatni, til þess að enginn grunur félli á þá um hlut-
deild í fæðingu hins veikburða hvítvoðungs. Sjálfá
skorti þá sköpunarmáttinn — og fyrir lá yfirlýsing
forseta lýðveldisins um, að hann myndi taka til sinna
ráða um myndun ríkisstjórnar, ef alþingi tækist ekki
irinan ákveðins tíma að leysa þetta hlutverk.
Forseta var ljóst, hver nauðsyn var á skjótri myndun
stjórnar til að annast framkvæmdavaldið í landinu
a þeim alvarlegu tímum, sem að fóru. Þingið sá hætt-
Yna, en stóð uppi ráðþrota. Menn krosslögðu hendur
a brjósti, sumir staðráðnir í að gefa upp alla vörn, ef
ekki yrði fallizt á ákveðnar trúarjátningar fyrir fram
rim leiðir til björgunar, sumir bitu sig svo fast í játning-
16