Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1949, Page 33

Eimreiðin - 01.10.1949, Page 33
eimreiðin PICASSO 269 Picasso mun því jafnan verða talinn einn þýðingarmesti rnálari þessa tímabils. Hitt er svo mikið vafamál, livort sagan viður- kennir nokkurntíma, að þetta tímabil jafnist á nokkurn liátt við onnur eldri tímabil í listinni, svo sem ítalska listtímabilið á dögum Miclielangelo eða það gríska á dögum Fidíasar. Flestir 'nunu telja, að fegurstu verkin, sem Picasso hefur gert, séu frá œskuárunum, bláma-, rósalita- og klassiska tímabilinu svonefnda ** listamannsferli lians. Um það atriði fer eftir stnekk manna og mati á því, livað listin sé í eðli sínu. En uni það kemur öllum saman, að Picasso sé einhver álirifaríkasti listmálari, sem nú er nppi í lieiminum. Sv. S. INiú kemur þú» Nú kemur þú, vetur, með kulda og hríð og keyrir allt líf í dróma, föhiaðan sá ég um flöt og hlíð fegursta sumarblóma, flúið hafa þitt fár og stríð fuglar með sæta róma. Um hjarnað landið og höfin víð hersöngvar þínir óma. En þó að þú takir veg og völd og völluna látir frjósa, hræðist ég ei þinn skyggða skjöld með skartinu hélurósa. Veit ég þín sögu- og kvæðakvöld og kyndlana norðurljósa. Gleð ég mig við þau gæðafjöld og gjafmildi þinni hrósa. Jón Jónsson, Skagfirðingur.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.