Eimreiðin - 01.01.1954, Blaðsíða 82
Máttur mannsandans
eftir tlr. Alexander Cannon•
XVIII. kafli.
NiSurlagsorS.
Þegar ég nú tek mér penna í hönd til þess að lúka þessari
stuttlegu könnun á því, hvað hægt sé að gera til þess, að áreynslu
þeirri og amstri, sem menningarlífi nútímans fylgir, létti, og
endurvekja forn fræði í nýju ljósi, þá verður mér litið á vegg-
almanakið, sem hangir yfir skrifborðinu mínu og sé, að tilvitn-
unin fyrir daginn í dag er tekin úr sögunni „Martin Chuzzle-
whit“ eftir Dickens. Tilvitnunin er svona: „Það er sama með
hverjum hætti þú vinnur þér fyrir daglegu brauði, þú verður
undir öllum kringumstæðum að setja þér þínar eigin reglur og
fyrirmæli, sem aldrei má frá víkja.“ Ég vil bæta því við, að
með því að skoða eigin hug ofan í kjölinn, getum við sett sjálf-
um okkur þær einar reglur og fyrirmæli, sem sifellt auka á ham-
ingju okkar, hreysti og farsæld, í vaxandi mæli með hverjum
nýjum degi ævinnar.
Það sem skiptir öllu máli er að öðlast hrausta sál í hraustum
líkama, en þetta öðlumst við með því að læra að þekkja okkur
sjálf. Boðorðið: „Þekktu sjálfan þig!“ verður því aðeins fram-
kvæmt, að við þekkjum þau lífeðlisfræðileg fyrirbrigði, sem
ráða störfum líkamans, svo sem öndunina, blóðrásina o. s. frv.
Ef við þekkjum þessi fyrirbrigði út í æsar, þá lærist okkur einnig
að skilja, hvernig andleg líðan okkar grundvallast beinlínis á
valdi því, sem við höfum náð yfir líkamanum og ásigkomulagi
hans. En með þessu er þó engan veginn allt fengið. Því að hægt
er að þroska hina æðri hugarstarfsemi, svo sem minni, ályktunar-
hæfileika, dómgreind og skilning, óháð líkamsstarfseminni og
með því að opna hugann fyrir andlegum áhrifum. Áður er
búið að sýna fram á, að hugur manns getur undir vissum kring-
umstæðum starfað utan líkamans og óháð honum. Við vitum,
að menn verða stundum fyrir innblæstri frá æðri uppsprettu