Eimreiðin - 01.01.1954, Blaðsíða 86
66
MÁTTUR MANNSANDANS
EIMREIÐIN
ég hef verið að skýra þér frá. Þá verður líf þitt farsælt, fullt
hreysti og fagnaðar. Þá muntu flytja öðrum hamingju, því að
þú verður að láta þér skiljast, að það, sem þú óskar öðrum,
verður jafnframt sjálfs þín hlutskipti. Láttu þig því aldrei henda
þá óhæfu, að hugsa öðrum til tjóns, því að slíkt færðu borgað
aftur fyrr eða síðar með vöxtum og vaxtavöxtum. Hafðu sterkan
vörð við Öll hlið hugar þíns og gæt þess að hlaða ramhyggilega
upp í hlið haturshugsana og — kvala, ótta, afbrýði og lastmælgi
og læs þeim vandlega. Hugsaðu gott til allra, því að eins og
þú hugsar og talar um aðra, munu aðrir hugsa og tala um þig-
Gefðu gaum að heimum hugans og hafðu vit á að greina rétt
frá röngu, og halt því, sem rétt er. Vertu máttugur í andanum
og varastu eigingirnina. Beittu viti þinu til varanlegra verka.
Einbeittu huganum að því að vekja upp það, sem þú vilt skapa,
með því að gera af því skýra mynd í huganum. Sendu þessa
hug-mynd á réttan hátt og beinskeytt að markinu. Sé henni
rétt stefnt, mun hún ná því og fullkomna verk það, sem henni
var ætlað. Með þessu lærist þér leyndardómur sannrar farsæld-
ar: að gera aðra hamingjusama eins og sjálfan þig, bæði í
þessu lífi og um alla eilífð.
Ég legg enn að nýju áherzlu á þann óhrekjandi sannleika,
að maðurinn er háður því umhverfi, sem hann skapar og bund-
inn þeim takmörkunum, sem hann sjálfur setur sér. Hann lifir
í sínum eigin hugarheimi, og það er undir honum sjálfum komið,
hvort sá heimur er veröld sælu eða vítiskvöl. Því að það stendur
óhaggað, sem Heilög ritning boðar, að guðsríki er hið innra
með þeim, sem þekkja hina konunglegu íþrótt og kunna að beita
henni.
— Endir.