Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1953, Side 9

Ægir - 01.11.1953, Side 9
Æ G I R 263 Hluti af aðalsal efnarannsóknar- stofu. Tœlcid til hœgri á myndinni er móle- kúlar-eimingarlœUi, sem m. a. má nola til að eima A-vila- mín úr lýsi. geyma við mismunandi frost til þess að prófa geymsluþol hans og gæði uinbúða. Einnig verður hægt að salta þar fisk og prófa hæfni saltsins, reykja fisk og fram- kvæma hvers konar fóðurefnavinnslu, sem til greina kemur. Tæki tilraunaverksmiðj- unnar eru einnig hugsuð sem kennslutæki í sambandi við tæknikennsluna. Höfuðmark- mið tilraunareksturs á borð við þann, sem hér er fyrirhugaður, er að reyna að koma í veg fyrir að gerð séu kostnaðarsöm mis- tök eins og hætt er við að geti orðið, þegar stofnað er til stórvinnslu án þess að nauð- synlegar tilraunir séu gerðar áður. Til þessa hefur rannsóknarstarfsemin ekki getað orð- ið fiskiðnaðinum sá bakhjarl, sem hún ætti að geta orðið. Það er t. d. eftirtektarvert, hvernig Norðmenn hafa að mestu leyti sloppig við þau mjög svo alvarlegu mistök, sem hrjáð hafa íslenzkan fiskiðnað á und- anförnum árum. Ég held, að ein megin á- stæðan fyrir þessu láni þeirra sé sú, hvernig þeir hafa byggt upp rannsóknar- og tilrauna- starfsemi sína.“ ..Hvað er annars að segja uin rannsókn- arstarfsemi Norðmanna i þágu fiskiðnað- arins?“ „Niðursuðuiðnrekendur í Noregi hafa með sér samtök, og standa þau að rannsókn- arstofnun og tækniskóli, sem hvort tveggja er í Staíangri. Þessi stofnun hjá Norðmönn- um fyrir niðursuðuiðnaðinn einan er stærri en sú, sem hér er fyrirhuguð fyrir allar greinar fiskiðnaðarins. í Bergen liefur sildar- verksmiðjuiðnaðurinn rannsóknarstofnun. Fyrrgreindar rannsóknarstofnanir eru starf- ræktar að mestu fyrir fé frá viðkomandi iðn- greinum. Enn fremur hafa Norðmenn iitla rannsóknarstofu i Kristiansund N, sein að verulegu Ieyti vinnur að verkefnum fyrir saltfiskiðnaðinn. Loks er þess að geta, að á vegum fiskimálaskrifstofunnar er mikil rannsóknarstofnun. (Fiskeridirektoratets Forsknings Indstitutt). Við þessar rann- sóknarstofnanir munu vinna um 100 manns. Ég bendi á þetta til þess að sýna, hvað Norð- menn leggja mikla áherzlu á þessar rann- sóknir. Vegna fátæktar og smæðar erum við Islendingar tilneyddir að sameina þessar rannsóknir meira en Norðmenn gera, enda

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.