Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1953, Page 13

Ægir - 01.11.1953, Page 13
Æ G I R 267 Hús vita- og hafnarmálastjórnar við Seljaveg 32 i Regkjavík. Bjarnarfirði á Ströndum, Skorði við Miðfjörð, Straumnesi við Haganesvík, Hrólfsskeri í Eyjafirði, Snartastaðatanga við Kópasker, Hraunhafnartanga á Sléttu, Raufarhöfn, Grenjanesi á Langanesi, Digranesi við Bakkafjörð, Kolbeinstanga við Vopnafjörð, Kögri við Borgarfjörð eystra, Bakkabökkum við Norðfjörð, Selnesi við Breiðdalsvik, Ketilfles í Suður-Múlasýslu, Hornafirði, Hrolllaugseyjum, Faxaskeri við Vestmannaeyjar, Þridrang við Vestmannaeyjar, Knarrarós við Stokkseyri, Hafnarnesi við Þorlákshöfn. Flestir þessara vita eru sterkbyggðir, úr járnbentri steinsteypu, og ættu því að geta cnzt lengur en eldri vitarnir, sem margir hverjir voru gerði á frumstæðan hátt. Þá eru þeir einnig flestir þannig gerðir að koma má fyrir í þeim sterkari ljóstækjum, ef þess kynni að verða óskað. Enn eitt nýmæli í sambandi við vitabygg- ingar síðustu ára er rétt að benda á. Af ofan- greindum 34 nýbyggingum eru 8 reistar í smáskerjum við fjölfarnar siglingaleiðir, skerjum, þar sem sjór gengur yfir, velflest, i illviðrum, og sem á engan hátt er unnt að auðkenna betur en með því að setja upp ljós á þeim sjálfum. Þessir vitar eru gæzlulausir og sjálfvirkir, og hafa yfirleitt reynzt vel. Endurbyggðir vitar. Á eftirgreindum stöðum hafa vitarnir verið endurbyggðir, og í flestum tilfellum stækk- aðir og endurbættir um leið: Reykjanesi, aukavitinn, Garðskaga, Gróttu, Akranesi, Malarrifi, Höskuldsey, Elliðaev, Bjargtöng- um, Grímsey í Steingrímsfirði, Malarhorni, Iválfshamri, Langanesi, Bjarnarey, Brimnesi, Hafnarnesi, Stokksnesi, Hvanney, Ingólfs- höfða. Allir þessir vitar eru byggðir á sama hátt og nýbyggingarnar, sem áður hefur verið lýst, og koma í stað lélegri og ófullkomnari vitahúsa en áður voru þar. í sjö tilfellum af

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.