Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1953, Page 14

Ægir - 01.11.1953, Page 14
268 Æ G I R Einn af hinum nijrri vilum. þessum átján, hafa járnbent steinsteypuhús komið í stað járngrindarundirbyggingar, sem yfirleitt liafa ekki reynzt vel. Járngrindar- vitar eru þó enn eftir 7 talsins, og verða þeir endurbyggðir við fyrsta hentugleika. Annars eru vitahúsin nú orðin í sæmilega góðu lagi. Hafnarljós. Þeim hefur fjölgað mikið hin síðustu ár, eftir því sem bryggjur hafa verið byggðar og önnur hafnarmannvirki, sem skip þurfa að sigla hjá, eða leggjast að. Þau munu nú vera 71 talsins. Ljósdufl. Ljósdufl eru aðallega í Faxaflóa og i fjörð- um inn úr honum. Ennfremur eitt við Vest- mannaeyjar. Samtals munu nú vera úti 17 ljósdufl. Hafa þau öll nema eitt verið sett upp á styrjaldarárunum og siðan. Radíóvitar. Radíóvitar eru nú orðnir nokkuð margir, og reknir bæði á vegum vitastjórnarinnar og flugmálastjórnarinnar. Fyrsti radíóvitinn var reistur á Dyrhólaey 1928. Hann hefur nú verið lagður niður. Annar radíóviti var á Rejdcjanesi, bjrggður 1936 og er enn í notlc- un. Auk hans rekur vitastjórnin nú radíóvita á eftirtöldum stöðum: Hornbjargi, Dalatanga og Vestra-Horni, og ennfrenmr smávita á Malarrifi, Sauðanesi og Eyrarbakka. Þá tek- ur vitastjórnin þátt í kostnaði við rekstur radíóvitans á Patreksfirði. Loks má geta þess, að flugmálastjórnin rekur hér æðimarga radíóvita, sem geta kom- ið sjófarendum að gagni, og hafa 13 radíó- vitar verið auglýstir í því skyni. Radíómiðunarstöðvar. Tvær radíómiðunarstöðvar eru reknar af vitamálastjórninni, á Akranesi og Garðskaga, og sú þriðja hefur verið auglýst í Vestmanna- ej7jum. Eiga þær að vera til taks, þegar urn þær er beðið. Hljóðvitar. Hljóðvitarnir eru tveir, á Sauðanesi við Siglufjörð og á Dalatanga við Seyðisfjörð. Engir nýir liljóðvitar hafa verið byggðir hin síðustu ár og ekki líkur til, að þeim verði fjö'gað. Vitafjöldinn nú. Á þessu 75 ára afmæli vitanna á íslandi standa því sakirnar þannig, að nú eru starf- ræktir: Ljósvitar.............. 104 Hafnarvitar og leiðarlj. 71 Ljósdufl ............... 17 Radióvitar ............. 21 Radíómiðunarstöðvar 3 Hljóðvitar............... 2 Samtals 218

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.