Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1953, Qupperneq 18

Ægir - 01.11.1953, Qupperneq 18
272 Æ G I R Björn Ólafs í Mýrarhúsum. Þeim mönnum fækkar nú óðfluga, sem mest tök áttu í byltingu útvegsins um alda- mótin og siðar með tilkomu togaranna. Björn Ólafs í Mýrarhúsum var einn þeirra, en hann lézt 27. nóvember síðastliðinn. Björn Ólafs var fæddur í Mýrarhúsum 10. ágúst 1879 og þar var heimili hans alla ævi eða nær þrjá aldarfjórðunga. Þegar Björn er að alast upp, eru mikil umsvif í Seltirningum. Og þótt þeir sinni vel sínum jörðum, eru þó athafnir þeirra einkum bundnar við sjóinn, og á þeim vettvangi ráðast þeir til stórra átaka. Áhrif þessara atburða leika urn hug hans ungan og merki þeirra gætir í lífi hans alla ævi. Björn Ólafs kynnist sjónum í bernsku, svo til jafnskjótt og hann getur haldið undir hlunn, en hann kynnist jafnframt öllum stiguin sjávarútgerðar, saga hennar spannar ekki yfir stærra svið, þrátt fyrir aldirnar að baki. Áraskipið, skútan og togarinn eru vörðurnar, seim leiðum skipta í þessari sögu. Árið 1897 útskrifast Björn úr Stýri- mannaskólanum, átján ára gamall. En sam- að bíða í tvo daga eftir flugferð í Glasgow. Þar skoðuðum við mótorverksmiðju og báta- smíðastöð. Þar sáuin við tvær gerðir af björgunarbátum. Þeir minni voru smíðaðir úr aluminíum. Voru þeir hnoðaðir tvíraða og plötubrúnirnar beygðar inn og mynduðu bönd bátsins. Það, sem sérkennilegt var við stærri gerðina, en þeir bátar voru smíðaðir úr stáli og allir rafsoðnir, var, að böndin voru úr iy2 —• 2" pípum með þriggja feta millibili. P'öturnar mættu böndum á miðju röri. Báðar voru þessar bátategundir ætlaðar fyrir skip, og gátu stálbátarnir rúmað 50—60 inenn.— Eins og fyrr er getið er margvislegan fróð- leik að finna í ritgerðum þeiin, sem lagðar voru fram á fundinum, en enn hefur okkur ekki unnizt tími til þess að lesa þær til hlítar. tímis er liann að útskrifast úr skóla hinna kunnu skútuskipstjóra eins og Jóns Jónsson- ar úr Melshúsum o. fl. Á leið hans verða engar lykkjur. Hann er ungur orðinn skútu- skipstjóri og hráít verður hann slcipherra og meðeigandi stærsta skips ísl. fiskiflotans. Kútter „Björn Ólafsson“ var um 100 rúml., glæsilegt skip, sem margir litu hýru auga til og liöfðu sögur af að segja í heimabyggð- um, nýkomnir af vertíð. En þróunin var ör, það var eins og hún hefði tekið undir sig stökk, því að jafnvel kútter „Björn Ólafsson“ samsvaraði henni ekki, og fyrr en varði var Björn Ólafs í Mýrarhúsum orðinn skipstjóri á togara. En sjómannssaga Björns Ólafs er ekki þar með sögð, þótt hann mundi reyndar sjálfur hafa sagt, að af sér væri enga sögu að segja Hann var í senn aflasæll, giftusæll og mannsæll. Við þessi orð þarf litlu að bæta, þau lýsa betur en langt mál skipstjórnar- manninum Birni Ólafs. Eftir nær því fjöru- tíu ára starf á sjónum lá leiðin í land, ekki til þess að leggja hendur í skaut, aðeins til þess að strjúka af sér mestu sjávarseltuna. Ég kynntist Birni Ólafs fyrst, þá er hann var kominn á þann aldur, þegar flestir eru

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.