Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1953, Side 22

Ægir - 01.11.1953, Side 22
27fi Æ G I R Meá Oskari Halld órssyni í Vaglaskógi. Óskar Halliiórsson. Glugginn vissi til fjarðar. Enn var logn og komið kvöld. Strendur voru grænar svo langt út og upp sem sá. Margir bátar voru í höfn- inni, flestir smáir og í festum. Augu mín beindust ekki að einum hlut eða stað fremur öðrum. Hvergi sást ýfing. Hljóðlátt júlíkvöld hallaði að nóttu. Handan við þilið á herbergi mínu á Hótel Akureyri var skeggrætt í tillits- samri tóntegund um sild og ekkert annað en sí'd. Samræðan fjarlægðist, eins og smádó út um leið og vatnaði yfir vökuvitund mina. Næsti dagur heilsaði eins og sá fyrri kvaddi. Sólregnið helltist yfir allt og a'Ia i hvítalogni. Við bryggjuna lá bundinn bátur, er ekki hafði verið þar kvöldið áður. Á götunni fyrir neðan gluggann var fólk og hafði hraðan á í morgunsárinu. Ég undi heldur ekki doki og hélt í borðsal á neðstu hæð. Þar var fátt um manninn. Kona miðaldra sat við glugga í homkrók. Hún kom mér ekki ókunnuglega fyrir, var sennilega að sunnan. Piltungur á að gizka um tvítugt, í ívið ermastuttum svört- um jakka með doppóttan snítuklút um háls- inn, tyllti sér í miðjan sal og bað um kaffi. Með tilkomu þessarar þrenningar var dagur borðsalsins runninn upp. Konan hvimaði í átt til dyra í hvert sinn, sem hreyft var við hurðinni, eins og hún ætti von á einhverjum. En hennar fólk birt- ist ekki. Annað hvort hafði hún verið á undan áætlun eða það á eftir. Ég var í þann veginn að standa upp frá borðinu, þegar maður mikill pm sig og vörpulegur gekk inn salinn. Hann bar frakka á vinstra handlegg og svartan hatt í liendi, en þerraði svita af enni sér með þeirri hægri. „Þú ert þá hér,“ sagði hann um leið og hann stanzaði við borð mitt. Við því var vit- anlega ekki nema eitt svar úr því að ég ef- aðist ekki um að vera enn í tölu lifenda. „Engin síld“, sagði ég. „Nei, engin síld, ekki enn þá. Hún kemur eftir viku. Það verður mikil sild í sumar." „Og þú yfirgefur Siglufjörð og síldin að koma.“ „Rétt skrapp, var orðin óþolinmóður í blíðunni. Kom með smádollu og heilsaði upp á þá á Ólafsfirði og Dalvík. Þorsteinn á Dal- vík heldur, að það verði mikil síld. Hann er glöggur karl, ég treysti honum betur en vísindunum. — Mikið fjandi er maður krumpinn og lerkaður. Þær eru ekki fviár mig þessar kojur. Það er engin leið að hreyfa sig í þessum smáholum." Óskar Halldórsson reis nú upp eins og til að liðka sig og strauk niður pipar og salt fötin sín. „Kaffi eða te“ spurði stúlkan, eftir að Ósk- ar hafði sezt að nýju. „Eigið ekki til skyr eða hræring? Látið mig lielzt hafa hræring og kaffi á eftir. — Hef- urðu tekið eftir því, að það er eins og þær fari hjá sér þessar ungu dömur, þegar maður hiður um mat?“ Um leið og stúlkan færði Óskari kaffið eftir hræringin, óslcaði hann eftir vindli og nefndi þrjár tegundir. Mér viríist hún skilja lítið i vindlafræði Óskars, en að sjálfsögðu

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.