Ægir - 01.10.1980, Page 12
framkvæmdastjóri og Matthías Sveinsson
framkvæmdastjóri.
Framkvæmdastjóri verkefnisstjórnar er Ingólfur
Sverrisson og tæknilegir verkefnisstjórar Steinar
Viggósson vélstjóri og skipatæknifræðingur og
Þorsteinn Már Baldvinsson stýrimaður og skipa-
verkfræðingur.
Auk ofangreindra manna hafa verið og verða
kallaðir til leiðandi tæknimenn þátttökufyrirtækj-
anna.
Aðrar aðgerðir
Eins og fram kemur hér að framan eru mark-
mið verkefnisins ljós og snerta flesta ef ekki alla
þætti sem hafa áhrif á framkvæmd innlendra
skipasmíða. Hinu má þó ekki gleyma, að þátttöku-
fyrirtækin sjálf verða að hagræða ýmsu innan sinna
veggja ef sá árangur sem stefnt er að á að nást.
Hér er um samstarfsverkefni margra fyrirtæka
að ræða og því augljóst að þau verða að móta sér
sameiginlegan grundvöll til að starfa á. Eitt það
mikilvægasta á þessu sviði er að fyrirtækin tali
sama „tungumálið" ef svo má að orði komast; að
þau geti unnið eftir ákveðnum sameiginlegum
grundvallarforsendum. Að öðrum kosti er hætta á
að samstarfið falli á veikum grunni misskilnings
og misræmis.
Iðnþróunarverkefni Sambands málm- og skipa-
smiðja hefur nýlega gert kaupsamning á flokk-
unarkerfi frá Norges Skipsforskningsinstitutt, en
með þessu kerfi - og ýmsum aðgerðum sem með
innkeyrslu þess fylgja - verða allir vinnutímat
skráðir á samræmdan hátt. Þessi samræmda
niðurröðun og skráning vinnutímanna er einn
grundvöllur þess að við verði komið þeirri alls-
herjar samræmingu og framleiðniaukningu sem
nauðsynleg er til að ná þeim árangri sem steint
er að.
Með notkun þessa flokkunarkerfis skapast auk
þessa ýmsir aðrir möguleikar, svo sem tilboðsgerð
í viðgerðir skipa og fyrirbyggjandi viðhald skipa-
í því sambandi má - á þessum vettvangi - geta
þess, að mjög víðtækt kerfi til notkunar við fyrtr-
byggjandi viðhald skipa, svonefnt TSAR-kerfi-
er byggt á umræddu flokkunarkerfi og vonandi
gefst síðar tækifæri til að greina frá því.
Með þessu greinarkorni vildi ég gera örstutta
grein fyrir markmiðum þessa samstarfsverkefms,
stjórnun þess og starfsliði svo og því að íslenskar
skipasmíðastöðvar munu á næstu misserum treysta
grundvöll samstarfs síns til að ná fram aukinm
framleiðni og um leið ódýrari framleiðslu.
En hvað sem öllum fögrum fyrirheitum líður þa
rætist þetta því aðeins að fullur skilningur
allra íslenskra aðila, sem þetta mál varðar, sé fyrir
hendi; í trausti þess er haldið á brattann.
Úr skipasmíðastöðirmi Stdlvík.
516 — ÆGIR