Ægir - 01.10.1980, Blaðsíða 62
ÁTÆKJAMARKAÐNUM
C-Tech Sonar með litaskjá:
Asdiktæki frá fyrirtækinu C-Tech Ltd í Kanada,
svonefndur Omni Sonar LSS 30 (PT), var upphaf-
lega kynnt hér á landi í maí árið 1975 og var þá fjall-
að um það í Ægi (11. tbl. ’75). Fyrsta C-Tech asd-
iktækið kom hins vegar fyrst fram í íslenzku fiski-
skipi árið 1978 (janúar), er nótaskipið Bjarni Ólafs-
son AK 70 bættist í flotann. Um var að ræða endur-
bætta útfærslu frá þeirri upphaflegu, sem einkum
fólst í meiri sveigjun (tilt) á geisla niður, þ.e. úr
10° í 45°.
Nú er komin á markaðinn endurbætt útgáfa af
Omni Sonar sem nefnist CSSH-DCU 30 og er aðal-
breytingin fólgin í nýju sjón- og stjórntæki (DCU
30), en unnt er að skipta út eldri sjón- og stjórn-
tækjum fyrir hið nýja viðbótartæki (DCU 30).
Sjálft viðbótartækið, DCU 30, er 12” sjónvarps-
skjár og stjórneining. Sjónvarpsskjárinn getur hvort
sem er verið svart/hvítur eða litaskjár, og sýnir
hann stöðuga mynd af umhverfi skipsins neðan-
sjávar. Auk myndar af endurvarpi sonarsins erU
ýmsar tölulegar upplýsingar á skjánum, svo sem
fjarlægð til, dýpt, stefna að og styrkur ákveðins
endurvarps (fiskitorfu). Unnt er að velja fimm slíka
athugunarstaði á skjánum, og fylgjast með hrey'
ingum þeirra miðað við skipið.
Langdrægni tækisins er frá 200 m til 4000 m, og er
stillingin stiglaus, þ.e. að unnt er að stilla á hvaða
langdrægni sem er á milli þessara talna. Tækin eru
framleidd með mismunandi senditíðni, 26 RHz*
30 KHz, 33 KHz og 36 KHz, og sendiafl er 1«
KW. Sveigjun geisla niður í 60° er nú möguleg-
Þá er minniseining í tækinu, þannig að unnt er a
láta tækið geyma ákveðna mynd, sem síðan er unnt
að skoða og bera saman við þær myndir sem seinna
koma. .
C-Tech sonar er nú kominn í átta íslenzk fisk1
skip, þar af eru þrjú með DCU 30 einingum>
en þau eru Bjarni Ólafsson AK, Kap II VE og Ha
kon ÞH.
Verð tækisins er 99.000 $ eða um 53,5 mt J;
ísl. kr. miðað við gengi um miðjan október en el
útfærslan kostar 69.000 $ eða um 37,3 millj- lS'
kr. Umboðsaðili fyrir C-Tech á íslandi er R- ^1?
mundsson h.f.
566 — ÆGIR