Ægir - 01.10.1980, Blaðsíða 52
Tilkynning
frá Fiskveiðasjóði íslands um
umsóknir um lán á árinu 1981
Á árinu 1981 verða veitt lán úr Fiskveiðasjóði íslands til eftirtalinna
framkvæmda í sjávarútvegi:
1. Til framkvæmda í fiskiðnaði.
Eins og áður verður einkum lögð áhersla á framkvæmdir er leiða til aukinnar
hagkvæmni í rekstri og bættrar nýtingar hráefnis og vinnuafls og arðsemi
framkvæmdanna. Ekki verða veitt lán til að hefja byggingu nýrra fiskvinnslustöðva,
eða auka verulega afkastagetu þeirra, sem fyrir eru á þeim stöðum, þar sem talið
er að næg afköst séu þegar fyrir hendi til vinnslu þess afla, sem gera má ráð fyrir að til
falli í byggðalaginu.
2. Til fiskiskipa.
Lán verða veitt til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er
nauðsynlegt og hagkvæmt, svo og einhver lán til nýbygginga innanlands.
Umsækjendur um lán skulu skila umsóknum sínum á þar til gerðum eyðublöðum,
ásamt þeim gögnum og upplýsingum sem þar er getið, að öðrum kosti verður
umsókn ekki tekin til greina (Eyðublöðin fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands,
Austurstræti 19, Reykjavík).
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1980. Umsóknir er berast eftir þann tima verða ekki
teknar til greina við lánveitingar á árinu 1981, nema um sé að ræða ófyrirséð
óhöpp. Allar eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Lánsloforð Fiskveiðasjóðs skal liggja fyrir, áður en framkvæmdir eru hafnar.