Ægir - 01.10.1980, Page 34
Rsekju- og frystiskip:
Fjöldi skipa 8 12 15 19 18
Brúttótekjur 1.281 4.273 5.157 7.382 7.812
Rekstrarútgjöld 1.347 3.477 4.241 5.516 6.174
Nettóhagnaður fyrir skatta og afskriftir * 66 796 916 1.866 1.638
Gúanófiskiskip:
Fjöldi skipa 9 22 25 25 13
Brúttótekjur 885 1.063 1.392 1.674 1.936
Rekstrarútgjöld 848 1.051 1.294 1.494 1.729
Nettóhagnaður fyrir skatta og afskriftir 37 12 98 180 207
Fjármögnun fískiskipa:
Færeysk fiskiskip eru venjulega fjármögnuð á
eftirfarandi hátt:
1. Lán frá Færeyska stofnlánasjóðnum, (Færo-
ernes realkreditinstitut), 50% kaupverðs (eftir
mati) til 10 ára gegn 1. veðrétti.
2. Lán frá Danska útvegsbankanum, (Danmarks
Fiskeribank), 15—20% til 15 ára gegn 2. veðrétti-
3. Viðbótarlán frá landssjóði (Landskassen).
15-25%. Það lán ber ekki vexti og er því aðeins
endurgreitt, að skipið sé selt til útlanda.
4. Eigið fé þau 10-15% sem eftir eru. Auk þesS
hefur landssjóður heimild til að veita lán til
greiðslu á gengistapi gegn 4. veðrétti.
Minning:
Kristján Gústafsson
útgerðarmaður, Hornafirði
Kristján Gústafsson
fyrrverandi útgerðarmað-
ur á Hornafirði lést á
Borgarspítalanum í Rey-
kjavík 27. apríl s.l.
Hann var fæddur 12.
maí 1921 á Djúpavogi,
sonur hjónanna Jónínu
Rebekku Hjörleifsdóttur
og Gústafs Valdimars
Kristjánssonar, en þau
bjuggu lengi að Lögbergi,
Djúpavogi. Hann fór snemma að vinna við sjáv-
arstörf með föður sínum og innan við fermingu
gerðis hann sjómaður á smábát.
Árið 1945 fór Kristján í Stýrimannaskólann °£
lauk þaðan fiskimannaprófi hinu meira 1947. A
loknu fiskimannaprófi gerðist hann stýrimaður o£
síðan skipstjóri á ýmsum skipum. Útgerð byrjn^1
hann 1960 og rak hana til ársins 1976, lengst af Úa
Hornafirði, en þangað flutti hann 1958.
Árið 1970 stofnaði Kristján til veiðarfærager^
ar á Höfn og rak hana ásamt öðrum og var frarn
kvæmdastjóri hennar. Eftir að hann hætti útger
eða um 1976 byrjaði hann að reka síldarsöltuU
er síðar varð umsvifamikið fyrirtæki og víða þek
við sjávarsíðuna undir nafninu Stemma.
Kristján Gústafsson átti sæti á Fiskiþingi 1975 og
1976 og starfaði hann einnig í félagssamtökunj-
þar á meðal var hann virkur í Sambandi Fis
félagsdeilda í Austfirðingafjórðungi. ,
Kristján var kvæntur Sólrúnu Einarsdóttur
Hvalnesi í Lóni. Þau eignuðust fjögur börn. Sen
um við Fiskifélagsmenn henni og fjölskylduu
samúðarkveðjur.
538 — ÆGIR