Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1980, Page 46

Ægir - 01.10.1980, Page 46
Ingimar Jóhannsson: Um sleppingu laxaseiða í Lóni í Kelduhverfi Fiskifélag íslands hefur sem kunnugt er staðið fyrir athugunum og rannsóknum á Lóni í Keldu- hverfi á undanförnum árum. Tilraunir hafa verið gerðar þar, þó í smáum stíl, með laxeldi í búrum og sleppingu laxaseiða. Innstreymi fersks vatns í Lón er nær eingöngu úr volgum og köldum lindum, en flestar eru þessar lindar á botni Lóns. Meðalinnstreymi á fersku vatni í Lón er áætlað um 6,6 m3/sek. Það magn af sjó sem streymir inn í Lón hverju sinni er ekki aðeins háð sjávarföllum og því hver stórstreymt er. Það er einnig breytilegt frá ári til árs vegna þess að dýpt og staða óssins breytist. Lónið er lagskipt, þannig að yfir sumartímann eru skörp skil milli hins ferska yfirborðslags og hins salta undirlags. Dýpt ferskvatnslagsins á sumrin er um 3 m, en yfir vetrarmánuðina verður dýptin 5-6 m auk þess sem skilin verða ekki eins skörp milli ferskvatnslags- ins og salta lagsins. Hámarksselta saltalagsins er um 20°/ooá sumrin, en minni yfir vetrarmánuðina. Hitastig ferska lagsins er á sumrin 8-10° C, en hitastig salta lagsins er þá 13-17° C. Sú reynsla sem fengist hefur með laxeldi 1 Lóni bendir til þess að hafbeitaraðstaða sé þar óvenju hagstæð af því er tekur til undirbúnings laxaseiða fyrir sleppingu til hafs. Ef seiðin eru alin í 5-6 m djúpri körfu um nokkurt skeið fyrir sleppingu, venjast þau ekki aðeins hinu ferska yfirborðslagi Lóns, heldur að- lagast einnig hinu salta botnlagi. Þannig má ætla, að seiðin yrðu betur búin undir ,,sjóferð“ en ef þau hefðu aðeins dvalist í fersku vatni. Þá má ætla að heppilegast sé að sleppa seiðunum við útfall nálægt ós vatnsins. Sumarið 1978 var 600 laxaseiðum sleppt í Lón, sumarið 1979 var 2400 seiðum sleppt og nú í sumar 2800 seiðum. Seiðin voru fengin frá Laxamýri og af Laxárstofni (stórlax), en seiði úr Laxá dvelja yfirleitt 2 ár í sjó. Aðferðin við undirbúning og sleppingu var sú sama og að framan er lýst. Seiðin voru alin í rúmlega mánaðartíma fyrir sleppingu í körfu, og voru þannig orðm seltuhert við sleppingu. Karfan var síðan dregm nálægt ós vatnsins og seiðunum sleppt við útfall. metrar. 550 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.