Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1980, Page 47

Ægir - 01.10.1980, Page 47
Þegar hefur orðið vart við endurheimtur frá slepp- 'ngunni 1978. Sumarið 1979 veiddust 5 smálaxar í net, og sumarið 1980 veiddust 30 „stórlaxar“ (nieðalþyngd um 6 kg) sem hafa dvalið 2 ár í sjó. Hafa þá skilað sér 35 laxar úr 600 seiða slepp- 'ngu frá 1978. Fullvíst má telja að fleiri fiskar hafi 8engið í Lónið, þó að þeir hafi ekki veiðst. Stefnt er að því að koma upp gildrum við ós Lóns, næsta v°r, þannig að nákvæmar upplýsingar fáist um endurheimtur. Hafbeitarstöðin við Lárós gerði tilraunir með sleppingu sjógönguseiða s.l. sumar. Sama tækni var n°tuð við sleppingu seiðanna og Fiskifélagið hefur v'ðhaft í Lóni undanfarin ár. Verður mjög fróð- 'egt að fylgjast með niðurstöðum þeirra Lárós- 'nanna, en upplýsingar ættu að liggja fyrir næsta Sumar þar sem seiðin sem sleppt var voru of smá- 'axakyni og snúa af hafi eftir eins árs dvöl í sjó. LÖG OG REGLUGERÐIR Reglugerð nrn aldurslagatryggingu vegna úreltra og óhag- v*mra fiskiskipa. (Breyting á þessari reglugerð, ut8efin 22. apríl, er tekin hér inn í). 1. gr. 3% útflutningsgjalds samkvæmt b) lið í 2. tölul. 2. &r- °g tekjum samkvæmt 2. mgr. 3. gr. laga nr. 2 1. ebrúar 1980 um breyting á lögum nr. 5 13. febrúar um útflutningsgjald af sjávarafurðum, skal Varið til að styrkja útgerðaraðila til að taka úrelt og °hagkvæm fiskiskip úr notkun. 2. gr. Stofna skal sérstakan sjóð, úreldingarsjóð, sem tehjur samkvæmt 1. gr. skulu renna til. Heimili sJ°ðsins verður hjá Samábyrgð íslands á fiskiskip- UnL sem veitir viðtöku umsóknum um styrki úr sJóðnum. 3- gr- . Sérstök stjórn skal úthluta fé úr sjóðnum. Stjórn- ‘na skipa þrír af stjórnarmönnum Samábyrgðarinn- ar Sem stjórn hennar tilnefnir, og að auki fjórir menn Sem sjávarútvegsráðherra skipar. Þrír þeirra skulu klPaðir samkvæmt tilnefningur eftirtalinna aðila: Flolbúr við Lón, dýpi neipokans er 6 metrar. Fiskveiðasjóður íslands, Farmanna- og fiskimannasamband íslands, Sjómannasamband íslands. Ráðherra skipar þessa fjóra fulltrúa samtímis því að skipað er í stjórn Samábyrgðarinnar, fyrsta sinn eftir setningu þessarar reglugerðar, og skal skipunartími þeirra jafnan vera hinn sami og skip- unartími stjórnarmanna Samábyrgðarinnar. Kostnaður vegna starfsemi sjóðsins skal greiddur af aflafé hans þ.ám. kostnaður, sem Samábyrgðin greiðir vegna starfsemi hans. 4. gr. Þegar útgerðaraðila er veitt fé úr sjóðnum, skal tekið tillit til bóta, sem hann kann samtímis að fá úr Aldurslagasjóði samkvæmt II. kafla laga nr. 37/1978 um Samábyrgð íslands á fiskiskipum. Þótt útgerðaraðili eigi ekki rétt á bótum úr Aldurslaga- sjóði, skal það þó ekki hamla því, að hann fái styrk úr úreldingarsjóðnum, ef sjóðsstjórn telur ástæðu til að slíkur styrkur sé veittur. 5. gr. Stjórn úreldingarsjóðs skal við úthlutun styrkja meta fjárhagsstöðu umsækjenda með tilliti til allra skulda, veðskulda, haldsréttarskulda og lausa- skulda. Sjóðsstjórn er ekki skylt að veita styrk að því marki að útgerðaraðili verði skuldlaus. ÆGIR — 551

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.