Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 32

Ægir - 01.10.1983, Qupperneq 32
sem í námi sínu hafa lagt aðaláherslu á viðfangsefni í sjávarútvegi. Vissulega hefur hvorugt fyrirkomulagið fengið sína endanlegu mynd enn sem komið er en reynsla okkar Norðmanna hingað til hefur sýnt að mikil þörf er fyrir fólk úr báðum skólunum. Auk þess náms sem skipulagt er af NÚH verður einnig að geta héraðsháskólanna sem margir hverjir eru með góðar námsbrautir í sjávarútvegsfræðum. Sérstaklega á þetta við um héraðsháskólana í Norður- Noregi. I tengslum við það nám sem stjórnað er af NÚH er að sjálfsögðu unnið að rannsóknum, bæði frumrann- sóknum og hagnýtum rannsóknum. Þessi rannsóknar- störf eru mikilvægur hluti þeirra heildarrannsóknar- og þróunarstarfa sem unnin eru fyrir norskan sjávar- útveg. Rannsóknar- og þróunarstörf Á árunum í kringum 1970 voru einnig gerðar marg- ar mikilvægar breytingar á skipulagi rannsóknarmála. Þá var lagður grundvöllur að því rannsóknarkerfi sem notast er við enn þann dag í dag. Það er ljóst að í há- skólum og ýmsum stofnunum voru þegar unnin rann- sóknarstörf sem höfðu mikla þýðingu fyrir sjávarút- veginn. Sérstaklega ber að nefna hafrannsóknirnar (auðlindarannsóknirnar) sem eiga sér langa hefð og hafa mikla þýðingu fyrir atvinnuveginn. í tækni- málum var ástandið langt frá því að vera æskilegt (í samanburði við ísland). Samræmið í rannsóknunum var líka heldur fátæklegt. En árið 1969 skilaði ríkis- skipuð nefnd (Fjellbirkelandkomitéen) áliti sínu sem stjórnvöld síðan sáu um að hrinda í framkvæmd; þetta hafði þrjár mikilvægar breytingar í för með sér: 1) stofnun Norges Fiskeriforskningsrád, NFFR (Rannsóknarráð sjávarútvegsins), sem skyldi fjár- magna, flokka í forgangsröð og samræma rann- sóknir í þágu sjávarútvegsins í Noregi (1972); 2) stofnun Fiskeriteknologisk forskningsinstitutt FTFI (Tæknirannsóknardeild sjávarútvegsins), árið 1973. Hér var um að ræða sjálfstæða rann- sóknarstofnun fyrir hagnýtar tæknirannsóknir; 3) aukin fjárframlög til sjávarútvegsrannsókna í Noregi. Mynd 1 sýnir skipulag heildarrannsókna á vegum norska sjávarútvegsráðuneytisins. Fjármagni er skipt í tvo staði. Annarsvegar er veitt fé til hefðbundinna rannsókna á vegum Fiskifélagsins (Fiskeridirektor- atet), þar sem Hafrannsóknastofnun er mikilvægasta stofnunin og hinsvegar til NFFR. Sjávarútvegsráðu- neytið veitti u.þ.b. 158 millj. nkr. til rannsókna árið 1983. Þaraf fóru u.þ.b. 100 millj. til stofnana Fiski- félagsins og fer mestur hluti þess fjár til hafrannsókna og reksturs rannsóknarskipa. Þæru.þ.b. 58 millj. sem eftir eru renna til NFFR. 100,7 57,6 millj. millj. n.kr. Fiskeridept. | n.kr. Fiskeri Dir. Havforsk ][ Ernær Fiskeridept. = Sjávarútvegsráðuneytið. Fiskeri Dir. = Fiskifélagið. Univers. Högsk. (Oslo, Bergen, Trondheim, Tromsö). NFFR = Rannsóknarráð Sjávarútvegsins. 536-ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.