Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1983, Blaðsíða 50

Ægir - 01.10.1983, Blaðsíða 50
Á TÆKJAMARKAÐNUM Honeywell Elac LAZ 2300 og LAZ 2500 Iitadýptarmælar Fyrirtækið Honeywell Elac Þýskalandi hefur nýlega sett á markaðinn tvær gerðir af litadýptar- mælum, af gerðinni LAZ 2300 og LAZ 2500. Þessi tæki voru kynnt á sýningunni World Fishing ’83 sem haldinn var í Kaupmannahöfn í júní s.l. Gerð LAZ 2300 sýnir endurvörpin á 10 tommu lita- skjá og er hægt að velja um 8 eða 16 liti á endurvörp- unum. Litirnir tákna styrk endurvarpanna og er lita- skalinn sýndur samtímis sem lóðrétt súla lengst til vinstri á skjánum. Dýptarsvið mælisins er stillanlegt á bilinu 1-999 m (einnig er val um fet eða faðma sem einingu) en hægt er að sýna samtímis mynd af hinu innstillta sviði og stækkaða mynd af þeim hluta sviðsins sem þörf er á að skoða nánar. Jafnframt þessu má velja botn- læsingu ef óskað er. Hægt er að tengja mælinn við bæði botnstykki og netsjárbúnað en þá er valið á milli þessara tveggja möguleika með því að þrýsta á hnapp. Myndhraðinn er stillanlegur í 99 þrepum og er hægt að fá fram kyrrstæða mynd á skjáinn og varðveita hana. Á skjánum birtast ýmsar tölulegar upplýsingar t.d. um dýpi, innstillt dýptarsvið og myndhraða. Samtímis venjulegri síritandi mynd dýptarmælis er hægt að hafa eftirtalda myndmöguleika á hluta af vinstri hlið skjásins: 1. Eldri endurvörp. 2. Fisksjá (A-Scope). 3. Botnharkan ogfiskþéttleikinn (biomass), eru sýnd sem 2 lóðréttar súlur á vinstri hlið skjásins. Við súlurnar er kvarði og er hæð hvorrar súlu mæli- kvarði á viðkomandi stærð þ.e. blá súla lengst til vinstri táknar botnhörkuna en hægra megin við hana er græn súla er táknar fiskþéttleikann. Tækið gefur frá sér hljóðmerki við ákveðna súluhæð en það mark er stillanlegt fyrir hvora súlu fyrir sig. | 1. mynd. Honeywell Elac LAZ 2300. Á fisksjánni er dýpið niður á endurvarpið lesið lóð- rétt niður skjáinn en endurvarpið kemur fram sem mismunandi löng lárétt lína á þeim stað. Litur lín- unnar og lengd eru hvort fyrir sig mælikvarði á styrk endurvarpsins. Fiskþéttleikinn er mælikvarði á fjölda fiska í þeim torfum sem lóðað er á hverju sinni, en hann er mældur þannig að fjöldi endurvarpa í torfunni er talinn. Hægt er að velja um hvort tækið gefur frá sér hljóð- merki þegar botnharkan vex umfram ákveðið viðvör- unarmark, sem er stillanlegt, eða hvort hljóðmerkið kemur þegar botnharkan er meiri en þetta mark og minnkar niður fyrir það. Mælinn má fá með 30,50 eða 150 KHZ tíðni og ef sendiaflið 500 W. Mælirinn er gerður fyrir 12,24 eða 32 V jafnspennu og er aflþörf hans um 50 W. LAZ 2500 mælirinn er stærra og að sumu leyti full' komnara tæki heldur en LAZ 2300 en býður þó ekki að öllu leyti upp á sömu möguleika svo sem t.d. botn- hörkumæli og fiskþéttleikamæli, sem LAZ 2300 hefur. Hér verða nú taldir upp nokkrir eiginleikar LAZ 2500 mælisins: 14 tommu litaskjár með möguleika á 4,8 eða 16 litum. Sendiafl er 450 W eða 1 KW (með sérstökum afl' magnara má ná 2 KW sendiafli). Hámarks m$0- svið er 4500 m við 15 KHZ tíðni og 2 KW sendiafl- 554-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.