Ægir - 01.10.1983, Blaðsíða 51
Myndmöguleikar skjásins eru sem hér segir:
1. Venjuleg síritandi mynd dýptarmælis, en
einnig er hægt að hafa allt dýptarsviðið á efri
helmingi skjásins og stækkaða mynd af hluta
þess á neðri helmingi skjásins.
2. Fisksjá, en einnig er hægt að hafa allt dýptar-
sviðið á efri helmingi skjásins og stækkaða
mynd af hluta þess á neðri helmingi skjásins.
3. Netsjármynd, en einnig er hægt að hafa venju-
lega mynd dýptarmælis á efri helmingi skjásins
en netsjármynd á neðri helmingnum.
4. Fisksjá á vinstri helmingi skjásins samtímis
venjulegri síritandi mynd dýptarmæiis á hægri
helmingi hans. Einnig má fyrir hvora mynd
sýna stækkun af hluta mælisviðsins á neðri
helmingi skjásins eins og við möguleika 1 og 2
og verða þá alls 4 myndir á skjánum í senn.
Fyrir ofannefnda myndmöguleika má fá fram
kyrrstæða mynd á skjáinn til nánari athugunar,
einnig má velja um botnlæsingu ef óskað er.
Auk þess koma fram á skjáinn ýmsar tölulegar
upplýsingar t.d. uminnstilltdýptarsvið og dýpi en
einnig eftirfarandi:
Ganghraði, ef tækið er tengt við logg.
Staðsetning, ef tækið er tengt við Loran C.
Sjávarhiti, ef tækið er tengt við hitanema.
Upplýsingar frá aflamæli.
Við mælinn má tengja aukaskjái, en einnig má
taka myndupplýsingarnar upp á myndband ef
óskað er.
2. mynd. Honeywell Elac LAZ 2500.
Mælirinn er gerður fyrir 12,24 eða 32 V jafn-
spennu eða 110, 220 V riðspennu, og er aflþörf
hans um 150 W.
Samkvæmt upplýsingum frá umboðsaðila hérlend-
is, sem er Skiparadíó h.f., er LAZ 2500 mælirinn
þegar kominn í þrjú íslensk fiskiskip, þ.e. Ögra RE
72, Vigra RE 71 og Otur GK 5. Verð á mælunum er
sem hér segir:
Fob verð frá Þýskalandi í þýskum mörkum 9.9 ’83.
En einnig umreiknað í ísl.kr. á núgildandi gengi.
LAZ2300 9570,-DM 100.470,-ísl. kr.
LAZ2500 22172,-DM 232.770,-ísl kr.
er tímarit þeirra, sem vilja fylgjast með því
helsta, sem er að gerast í sjávarútvegi.
ÆGIR-555