Ægir - 01.10.1983, Side 33
NFFR er stjórnað af fulltrúaráði og miðstjórn þar
sem eiga sæti fulltrúar frá atvinnulífinu ásamt há-
skólafólki, opinberum aðilum ofl. Hjá NFFR fá um-
sóknir um fjárveitingu til hagnýtra verkefna forgang
°g ráðið veitir einnig fé til sjávarútvegsrannsókna
háskóla, rannsóknastofnana, fyrirtækja og einka-
aðila. Fjárveitingar eru til rannsókna á þessum svið-
um: haflíffræði, veiðafæratækni, fiskvinnslu ásamt
fannsóknum á sviði hagfræði og samfélagsfræði.
Fjárveitingar NFFR árið 1983 voru sem hér segir:
Hagnýt verkefni í iðnaði, háskólum o.s.frv. 17,2millj. nkr.
Fiskeriteknologisk Forskningsinstitutt, FTFI 18,8 millj. nkr.
Styrkir ............................... 4,0 millj. nkr.
Stjórnun/upplýsingastarf............... 5,0 millj. nkr.
Rekstrarútgjöld samtals: 46,0 millj. nkr.
NýbyggingFTFI íTromsö..................12,0 millj. nkr.
Samtals: 58,0millj. nkr.
Fiskeriteknologisk forskningsintitutt FTFI:
Eins og sjá má á töflunni hér að framan fær FTFI
stærstan hluta þessa rannsóknarfjár sem veitt er af
NFFR. Þar eð FTFI er rannsóknarstofnun fyrir hag-
nýtar rannsóknir var henni falin sérstök ábyrgð á að
standa að tilraunaverkefnum, afla þekkingar og
koma árangri tilrauna sinna í gagnið í sjávarútveg-
tnum. Mig langar því til að ræða svolítið um hvernig
Þetta starf er skipulagt, hvers það krefst af fjármagni
°g hvaða starfsaðferðum og samstarfi hefur verið
byggt á.
I stjórn FTFI sitja 6 mikilvægir kunnáttumenn. Að
mínum dómi skiptir það sköpum ef vinna á gott rann-
sóknarstarf að stjórnin sé sterk og starfsöm. Rann-
sóknir verður að skipuleggja af framsýni. Tilraunir
sem ráðist er í verða að miðast við þörfina eftir svo-
sem 10 ár þegar árangurinn kemur í ljós. Gildi hag-
nýtra rannsókna felst aðeins í því að nýta megi niður-
stöður þeirra til hagsbóta fyrir greinina. Slíkt krefst
starfsáætlana sem ná yfir allt frá faglegum undirbún-
’ngi til hagnýts þróunarstarfs og prófunar. Það krefst
þess einnig að stjórnin beri skynbragð á gildi rann-
sókna og þekki vel til sjávarútvegsins þannig að hún
geti vísað veginn og veitt forgang þeim verkefnum
sem eitthvað framtíðargildi hafa.
Rannsóknum í FTFI er skipað í þrjár deildir:
1. Veiðafæradeild, Bergen
2. Skipadeild, Þrándheimi
3. Vinnsludeild, Tromsö
Hverri deild er stjórnað af rannsóknarstjóra sem
ábyrgur er fyrir starfinu á sínu sviði. Að auki hefur
verið komið á fót hópi sem fæst við hagfræðirannsókn-
ir. Nú er starfandi hjá stofnuninni um 80 manns sem
skila 59 ársverkefnum í rannsóknum. Önnur ársverk
fara í upplýsingastarf og stjórnun. Rannsóknarárs-
verkin skiptast þannig:
Veiðarfæradeild 13 ársverk
Skipadeild...... 13 ársverk
Vinnsludeild . . . 27,5 ársverk
Hagfræðihópur . . 5,5 ársverk
Samtals: ....... 59,0 ársverk
Fjárhagsáætlun FTFI fyrir árið 1983 hljóðar uppá
27,1 millj. nkr., þar sem um 18,8 millj. nkr. komafrá
NFFT, eins og áður hefur komið fram.
FTFI er ætlað að vera tengiliður milli þeirra undir-
stöðurannsókna sem gerðar eru í háskólum landsins
og hagnýtingar í fiskiðnaði. í flestum tilvikum byggir
FTFI á sérfræðiþekkingu háskólanna en þegar nauð-
synlegt eða eðlilegt þykir stendur stofnunin sjálf að
undirstöðurannsóknum og þeim faglega undirbúningi
sem við þær þarf. En hvort heldur er þá er það höfuð-
regla að rannsóknirnar miðist við þörf sjávarútvegs-
ins og að þær komi fiskiskipaflotanum og fyrirtækj-
unum til góða. Tengslin við háskólana eru engu að
síður mjög mikilvæg og gagnleg enda hefur FTFI í
gegnum árin fengið þeim fjöldann allan af undirstöðu-
verkefnum til úrvinnslu. Annað mikilvægt atriði er
hin þverfaglega uppbygging stofnunarinnar sem gerir
það að verkum að hún getur tekist á við vandamál af
ýmsu tagi sem sífellt skjóta upp kollinum við hönnun
hagnýtra hluta.
Aðalástæða þess að FTFI var komið fyrir á þremur
mismunandi stöðum var þörfin fyrir tengsl við þá
rannsóknarstaði sem þegar voru fyrir hendi. Afla-
deildin var staðsett í Bergen þar sem möguleikar voru
á nánum tengslum við Hafrannsóknastofnun og líf-
fræðideildina við Háskólann í Bergen. Skipadeildin
gat hagnýtt sér nauðsynlega tækniþekkingu við NTH
í Þrándheimi. Vinnsludeildin var sett á laggirnar í
Tromsö þar sem hún hefur átt nána samvinnu við
Háskólann. Þessi skipting hefur á margan hátt orðið
FTFI hagstæð, þrátt fyrir að þetta fyrirkomulag krefj-
ist meiri stjórnunar.
Tengslin við notendur (sjómenn) hafa að sjálf-
sögðu úrslitaþýðingu fyrir hagnýta rannsóknar-
stofnun. Aðalmarkmiðið er, eins og nefnt hefur verið
að nýta niðurstöðurnar til hagsbóta fyrir greinina.
Því verða áætlanir að miðast við aðstæður í sjávarút-
ÆGIR-537